157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

upplýsingagjöf vegna greiðslna fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.

[15:15]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég hef áður vakið athygli á tengslum hæstv. heilbrigðisráðherra við málefni Sjúkrahússins á Akureyri og spurt ráðherra sérstaklega um hæfi hennar til að koma að ákvörðunum í málum sem því tengjast. Eins og alþjóð veit hefur m.a. komið fram í umfjöllun fjölmiðla síðustu vikur að samlagsfélag ráðherra fékk verulegar greiðslur fyrir veitta heilbrigðisþjónustu frá Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um sjúkratryggingar. Tilgangur frumvarpsins er m.a. að skerpa á upplýsingagjöf samlagsfélaga, eins og félags heilbrigðisráðherra, um fjárhagsleg málsefni og greiðslur úr ríkissjóði. Frumvarpið mælir m.a. um auknar kröfur um upplýsingar um greiðslur til samningsaðila, kröfu um að samlagsfélög breyti rekstrarformi sínu til að auka upplýsingagjöf og kröfur um skil ársreikninga allra samningsaðila. Í frumvarpi ráðherra er t.d. vísað í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjúkratryggingastofnun þar sem kemur fram, með leyfi forseta:

„Eðli samlagsfélagaformsins veldur því að gagnsæi um þá fjármuni sem renna inn í félagið í gegnum samninga við sjúkratryggingastofnunina er mjög takmarkað.“

Með öðrum orðum: Við sjáum ekki með eðlilegum hætti umfang þessara greiðslna til samlagsfélaga fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.

Í því ljósi spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Telur ráðherra ekki eðlilegt í þágu trúverðugleika og trausts að hún gangi undan með góðu fordæmi og sjái til þess að birtir verði ársreikningar samlagsfélags hennar sem hefur þegið greiðslur úr ríkissjóði allt frá árinu 2012?