upplýsingagjöf vegna greiðslna fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.
Herra forseti. Hér spyr þingmaðurinn Ingibjörg Isaksen um tekjur til samlagsfélags sem er í eigu okkar hjóna og var að sjálfsögðu í hagsmunaskrá. Þær upplýsingar sem komið hafa fram í fjölmiðlum hafa komið frá okkur þannig að hér hefur verið fullt gegnsæi um tekjur þessa félags. Þess ber að geta að þarna eru tekjur sem eru í samræmi við samninga Sjúkratrygginga. Það er Sjúkrahúsið á Akureyri sem gerði þessa samninga og rukkar Sjúkratryggingar og endurgreiðir læknunum og í þeim heildargreiðslum sem greiddar eru er stór hluti sem fer í aðstöðugjöld og síðan eru líka tímaskilagjöld. Þarna hafa menn unnið í góðri trú og reyndar hefur eiginmaður minn, sem þingmanninum verður tíðrætt um, ekki enn fengið svör frá Sjúkrahúsinu á Akureyri um hvort þessir samningar falli undir gerviverktöku. Það er auðvitað sjúkrahúsið sem gerði samningana og það hefur verið unnið að þeim eftir góðri trú. En það hefur ekki staðið á okkur hjónum að gefa upplýsingar og ég endurtek að allar þær upplýsingar sem fram hafa komið í fjölmiðlum eru frá okkur.