157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

viðhorf ráðherra til sykurskatts.

[15:21]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Lýðheilsumál og forvarnir eru mörgum okkar ofarlega í huga og nú er hæstv. heilbrigðisráðherra að leggja fram aðgerðaáætlun gegn offitu og mæla fyrir hér síðar í dag. Um er að ræða 22 fjölbreyttar aðgerðir en í fyrstu aðgerðinni, sem ber yfirskriftina „Hagrænir hvatar og ráðleggingar um mataræði í lýðheilsustefnu“ er m.a. lagt til að þverfaglegur starfshópur verði stofnaður með fulltrúum helstu hagaðila. Hópnum verði falið að skoða m.a. fýsileika þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti, gott og vel, en einnig fýsileika þess að hækka álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur ásamt því að sporna við markaðssetningu óhollra matvæla gagnvart börnum. Það ber sem sagt að skoða að hækka álögur á tilteknar matvælategundir. Það er sem sé í skoðun hjá ríkisstjórninni að leggja á enn einn skattinn, sykurskatt eða óhollustuskatt, hvað sem fólk vill kalla slíkt. Það hefur verið prófað áður hér á Íslandi að leggja á sérstakan sykurskatt og er ljóst að áhrifin voru takmörkuð. Neyslan breyttist ekki mikið og skilaði skatturinn því alls ekki þeim heilsufarslega ávinningi sem lagt var upp með. Það sýnir að skattar og verðstýring leysa alls ekki rót þessa vanda. Það er lykilatriði að horfast í augu við að offita er flókið, samfélagslegt og einstaklingsbundið viðfangsefni. Lausnir sem byggjast eingöngu á hærra vöruverði eða aukinni skattheimtu geta hins vegar haft verulega neikvæðar afleiðingar, hækkað framfærslukostnað heimila og bitna líklega mest á tekjulægri hópum. Við verðum að nálgast þessi mál af skynsemi þar sem frelsi, ábyrgð og hvatar fara saman. En þótt þessi mál séu enn til skoðunar þá langar mig samt að spyrja hæstv. ráðherra einnar spurningar: Hvert er viðhorf hennar til slíkrar skattheimtu?