157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

viðhorf ráðherra til sykurskatts.

[15:24]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir ágæta spurningu. Það er alveg rétt að í þingsályktunartillögu er lagt til að skipaður verði hópur til að skoða þessi mál. Þetta er ekki neitt sem hlaupið er að og forgangsröðunin er að þetta verði gert innan þriggja ára.

Við vitum mætavel að verð skiptir máli og við vitum að það skiptir miklu varðandi lýðheilsu að auðvelda holla valið og torvelda hið óholla. Sykurskattur er ekki einfalt fyrirbæri. Það var prófað hér áður en sá skattur var ekki nógu vel útfærður. Ég hef ekki myndað mér skoðun vegna þess að ég hef ekki fylgst með þróun á gagnreyndri þekkingu á sykurskatti hin síðari ár. Ég fór vel yfir þetta í mínu lýðheilsunámi fyrir 16 árum en síðan hefur margt gerst. Það þarf því að fara vandlega yfir málin. Slíkum skatti er ekki ætlað að vera tekjur fyrir ríkissjóð, þá er skatturinn ekki að virka, það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því. Ég veit að t.d. í Mexíkó hafa þau náð árangri í að minnka sykurneyslu sem er afar mikilvægt er varðar offitu en það þarf að hækka vöruverð um sirka 20% til að verðið fari að hafa áhrif. Það er alveg eins með hollu vörurnar. Verðið þarf að lækka um 15–30% til að það virki. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með samblandi af þessu og síðan er þarna líka afar mikilvægt atriði sem er að merkja þessar gjörunnu vörur. En ég er ekki fyllilega sannfærð heldur vil ég að það verði farið yfir stöðu þekkingar á vandaðan hátt og síðan yrði tekin ákvörðun.