157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

viðhorf ráðherra til sykurskatts.

[15:26]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Já, það var svona það sem mann grunaði, að það er verið að skoða þetta mjög alvarlega og ef til þess kæmi, samkvæmt orðum hæstv. ráðherra, þá þyrfti um 20% hækkun að eiga sér stað til að það skilaði árangri. En gott og vel, það verður áhugavert að vinna áfram að þessu máli hér í þinginu og í hv. velferðarnefnd. Þetta mál á örugglega eftir að skapa mikla umræðu í samfélaginu. Það eru skiptar skoðanir í málefnum sem þessum og oft heitar og ekki síst gagnvart því hvernig við nálgumst börn og ungmenni. Í mínum huga er mikilvægt að í stað þess að refsa fólki með sköttum eigum við að styðja það til þess að geta tekið betri ákvarðanir um líf sitt. Fræðsla, hvatning, skýrari merkingar, aðgengi að hreyfingu og jafnvel samstarf við atvinnulífið eru raunhæfari leiðir að mínu mati. Við sjáum líka dæmi um að markviss heilsuefling — er ég ekki með tvær mínútur? Afsakið það, þá förum við nánar út í þetta mál örugglega síðar í dag þannig að ég kem (Forseti hringir.) sjónarmiðum mínum betur á framfæri þá. En varðandi svona neyslustýringu þá langar mig í seinni fyrirspurn að spyrja hæstv. ráðherra hvað henni finnist um aðgerðir (Forseti hringir.) eins og meiri hlutinn í Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ráðast í, að banna unnar kjötvörur í skólum.