157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

viðhorf ráðherra til sykurskatts.

[15:28]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Herra forseti. Nú veit ég ekki hvernig það verður útfært, þetta bann, og hvaða vörur er verið að hugsa um því að það þyrfti auðvitað að skilgreina mjög vel. En það er gríðarlega mikilvægt að vanda skólamáltíðir. Þar fá öll börnin að borða, alla vega einu sinni á dag, og ég myndi segja að það væri ekki gott ef ókeypis skólamáltíðir væru óhollar þannig að ég tel að það þurfi virkilega að vinna í skólum að því að gera máltíðir hollari og ég veit að það er hægt, ég hef sjálf búið í Svíþjóð og þar voru skólamáltíðir til fyrirmyndar. Ég treysti mér ekki til að svara þessu beint nema vita nákvæmlega um hvaða kjötvörur og unnin matvæli er verið að tala.