157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

tækjabúnaður og samvinna tollgæslu og löggæslu á landamærum.

[15:35]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Við erum í kraftmiklum aðgerðum, við erum í markvissum aðgerðum hvað varðar það að efla landamæravörslu. Ég nefni Entry/Exit-kerfið, ég nefni þungann sem við erum að setja í Schengen-samstarfið. Ég nefni samþykkt frumvarp, nýlega lagasetningu um farþegaupplýsingar. Mér finnst mikilvægt að við nálgumst þetta verkefni úr öllum áttum. Ég er hins vegar, eins og ég nefndi í fyrra svari, eindregið sammála hv. þingmanni um það að við þurfum að gera betur hvað tækjabúnað varðar en mun ekki standa hér og lofa aðgerðum ófjármögnuðum. Mér finnst ekki góður bragur á því af hálfu ráðherra að standa og lofa einhverju sem er ekki fjármagnað. Hef ég áhuga á því að fjármagna þessa hluti og sækja liðsinni þingsins um það? Já, ég sé fyrir mér að það væri vel til fundið að gera betur í þessum efnum. En þar vil ég líka nálgast málið heildstætt og fullvissa þingmanninn og þingið um það að ríkisstjórnin er öll sameinuð í þessu verkefni.