157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.

593. mál
[18:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026–2030.

Tillagan byggir á skýrslu starfshóps um offitu sem var skipaður af ráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, í nóvember 2021 og var falið að leggja fram drög að stefnumarkandi áherslum í forvörnum, heilsueflingu og meðferð vegna offitu. Hópurinn skilaði skýrslu til þáverandi heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar, í febrúar 2024, en skýrslan byggist líka að hluta til á aðgerðaáætlun til að draga úr tíðni offitu frá árinu 2013 en sem lítið hafði verið unnið með. Í byrjun árs 2025 var svo ráðinn verkefnisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu til að fylgja eftir skýrslu starfshópsins og móta aðgerðaáætlun í málaflokknum til fimm ára. Liður í þeirri vinnu var vinnustofa um málefni offitu á Íslandi sem haldin var á vegum ráðuneytisins í maí 2025. Fjölbreyttur hópur fagfólks og annarra haghafa tók þátt og var afurð vinnustofunnar tillögur að aðgerðum til úrbóta. Áætlunin hefur því átt sér nokkurn aðdraganda, m.a. aðkomu þriggja heilbrigðisráðherra ásamt því að vera unnin í miklu samráði við helstu fag- og hagaðila.

Frú forseti. Vaxandi tíðni offitu er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Ísland er ekki undanskilið þeirri þróun og hefur tíðni offitu farið hratt vaxandi hérlendis líkt og annars staðar í heiminum. Árið 2025 voru 60% fullorðinna og 26% barna of þung, þar af 24% fullorðinna og 7,5% barna með offitu. Í glænýrri skýrslu OECD kemur fram að forvarnir til að sporna gegn vaxandi tíðni offitu séu stærsti staki þátturinn sem fækkar tilfellum langvinnra sjúkdóma til framtíðar enda eykur offita áhættu á öðrum langvinnum sjúkdómum og er stór áhættuþáttur fyrir allt að 13 tegundum krabbameina, sykursýki 2, hjarta- og æðasjúkdómum, stoðkerfisvanda og almennt hækkaðri dánartíðni. Árið 2030 er gert ráð fyrir að 192.000 Íslendingar verði í ofþyngd eða með offitu og að stór hluti þeirra muni lifa við skert lífsgæði vegna offitu eða langvinnra sjúkdóma sem þangað má rekja.

Samkvæmt greiningu OECD er til mikils að vinna að ná að draga úr tíðni offitu á Íslandi. Til að mynda væri hægt að auka verga landsframleiðslu Íslands um meira en 0,3% á næstu 25 árum og auka lífslíkur um 2,5% á sama tímabili, takist að hægja á þróuninni samkvæmt mati stofnunarinnar. Með öflugum forvörnum gegn offitu mætti koma í veg fyrir rúmlega 400 ný tilfelli offitu og annarra langvinnra sjúkdóma á hverju ári og spara 4% útgjalda til heilbrigðisþjónustu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur ítrekað hvatt þjóðir heims til að bregðast við þróuninni með kerfisbundnum aðgerðum því offita hefur víðtæk áhrif á heilsu, líðan og lífsgæði þeirra sem lifa með sjúkdóminn.

Orsakir offitu eru fjölþættar. Nú er vitað að um flókinn efnaskiptasjúkdóm er að ræða þar sem samsetning fituvefjar og hormóna breytist og truflun verður á þyngdarstýringu líkamans. Sjúkdómurinn getur m.a. átt rætur að rekja til erfðaþátta, sem vega mikið, umhverfis eða áfalla og því er mikilvægt að tekið sé tillit til fjölbreyttra áhrifaþátta við greiningu og meðferð.

Um helmingur þeirra aðgerða sem lagðar eru fram í tillögunni rúmast innan ramma fjárlaga og felur í sér að tiltekin verkefni séu sett í forgang hjá þeim stofnunum sem eru ábyrgar fyrir aðgerðunum. Þær aðgerðir sem fela í sér viðbótarkostnað fela í sér útgjöld til skamms tíma, t.d. vegna innleiðingar á nýju verklagi eða kerfi, en fullyrða má að mikil hagkvæmni felist í því að sporna við vaxandi tíðni offitu, lágmarka alvarlega fylgisjúkdóma og auka lífsgæði þeirra sem lifa með offitu. Á fimm ára tímabili áætlunarinnar er gert ráð fyrir 1,2 milljarða kr. heildarkostnaði. Þar telur mest að koma á fót annars og þriðja stigs sérfræðiþjónustu fyrir bæði börn og fullorðna með offituvanda en slík úrræði eru nauðsynleg til að veita viðeigandi greiningu og meðferð við offitu og fækka þannig þeim sem búa við skert lífsgæði af völdum sjúkdómsins. Þetta leiðir til sparnaðar til lengri tíma, t.d. lægri lyfjakostnaðar vegna fylgisjúkdóma, kostnaðar vegna sérhæfðra meðferða, vinnutaps, örorku og fleira.

Virðulegi forseti. Ljóst er að þróunin hérlendis er ekki í rétta átt og því er mikilvægt að finna leiðir til að hægja á henni og jafnvel snúa henni við. Alvarleiki málsins er mikill og því er nauðsynlegt að grípa til kerfisbundinna aðgerða sem taka mið af samfélagslegum og umhverfistengdum áhrifaþáttum. Vissulega er besta leiðin að bæta almenna lýðheilsu eins og unnið er að samkvæmt lýðheilsustefnu, en það dugar ekki til. Það þarf að snúa þessari þróun við með sértækum aðgerðum. Fjárfesta þarf í skilvirkum forvörnum, skimunum, greiningaraðferðum, meðferðarúrræðum og langtímaeftirfylgni sem draga úr sjúkdómabyrði einstaklinga og samfélagsins í heild.

Þessari aðgerðaáætlun er ætlað að endurspegla þau grunngildi sem koma fram bæði í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem og lýðheilsustefnu til ársins 2030. Þá tekur hún mið af leiðarvísi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um forvarnir og meðferð sem og alþjóðlegum gæðaviðmiðum og klínískum leiðbeiningum um heilbrigðisþjónustu vegna offitu. Án viðbragða mun tíðni offitu halda áfram að aukast með alvarlegum afleiðingum fyrir samfélagið í heild sinni.

Tillagan skiptist í þrjá kafla og eru sameiginleg markmið aðgerða að móta heildstætt þjónustuferli sem samanstendur af lýðheilsu- og forvarnaaðgerðum, skimun, greiningu, meðferð og eftirfylgni yfir allan lífsferil einstaklings. Samhliða öflugum sértækum lýðheilsu- og forvarnaaðgerðum er mikilvægt að þeir einstaklingar sem eru með heilsufarsleg vandamál vegna offitu fái viðeigandi meðferð og stuðning í heilbrigðiskerfinu til að bæta heilsu sína og eiga kost á reglulegu eftirliti og endurhæfingu vegna sjúkdómsins. Efling sértækra forvarna gegn þekktum áhættuþáttum offitu er lykilatriði í að hægja á vaxandi tíðni. Þá er einnig mikilvægt að leggja ekki alla ábyrgð á einstaklinginn heldur stíga skref sem hafa jákvæð áhrif á hegðun með breytingum og hvötum í nærumhverfi einstaklings. Ef nærumhverfið styður ekki við heilsusamlegt líferni verður árangurinn lítill og því er mikilvægt að beita aðgerðum sem stuðla m.a. að hollara mataræði og aukinni hreyfingu. Leita þarf leiða til að lágmarka fordóma og vinna gegn rangfærslum um sjúkdóminn þannig að umræðan fari fram af virðingu með áherslu á uppbyggilega orðræðu um eðli sjúkdómsins og skaðsemi fordóma.

Frú forseti. Markviss og reglubundin gagnasöfnun er grundvöllur árangursríkrar stefnu og lykilatriði þegar kemur að því að meta árangur forvarna og annarra viðbragðsaðgerða. Því er lagt til að hefja á ný landskönnun á mataræði barna þar sem nýjustu niðurstöðurnar eru orðnar 20 ára gamlar en norræn vöktun á mataræði, hreyfingu og holdafari 7–12 ára barna á tíu ára tímabili sýndi neikvæða þróun á mataræði íslenskra barna. Í áætluninni allri er sérstök áhersla á vernd barna enda vitað að offita í æsku fimmfaldar líkur á offitu og fylgisjúkdómum á fullorðinsárum. Þá er einnig lögð til þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um offitu barna á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar en Ísland er eina landið sem tekur ekki þátt í verkefninu. Þannig er hægt að tryggja gæði þeirra gagna sem eru notuð við stefnumótun og forvarnir, bera saman þyngdarþróun barna og unglinga milli þjóða sem skapar tækifæri til að nýta alþjóðlega þekkingu og reynslu annarra landa til að þróa árangursríkar og gagnreyndar lausnir hér á landi.

Meðferð vegna offitu miðar ekki eingöngu að því að stuðla að þyngdartapi heldur fyrst og fremst að bættu heilsufari, líðan og lífsgæðum þeirra sem eru með offitu. Horfa þarf til langtímabreytinga á lífeðlisfræðilegum mælingum eins og t.d. blóðþrýstingi ásamt því að meðhöndla fylgisjúkdóma. Byggja þarf upp fjölbreytt meðferðarúrræði sem grundvallast á þeirri staðreynd að offita er líffræðilegur og fjölþættur sjúkdómur og krefst meðferðar sem er heildræn og gagnreynd. Meðferðarmöguleikar hafa breyst mikið og því þarf stöðugt að bæta vinnulag í kringum sérhæfða meðferð fyrir einstaklinga með offituvanda og skilgreina vel hvaða hópar þurfa sérhæfða meðferð. Öflug sérfræðiþjónusta við offitu eykur aðgengi að þverfaglegri meðferð og minnkar álag á aðra sérfræðiþjónustu og sjúkrahúsþjónustu. Með þessari áætlun er þannig ætlunin að tryggja þeim sem lifa með sjúkdóminn offitu viðeigandi meðferð.

Frú forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði tillögunnar og legg til að henni verði að lokinni fyrri umræðu vísað til hv. velferðarnefndar.