afsal þingmennsku.
Forseta hefur borist bréf, dagsett 21. apríl 2026, frá 1. þm. Suðvesturkjördæmis, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Bréfið er svohljóðandi:
„Með bréfi þessu segi ég af mér þingmennsku frá og með 27. apríl 2026 þar sem tilkynnt hefur verið um ákvörðun um að skipa mig sendiherra fyrir Ísland.
Virðingarfyllst,
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.“
Ég vil að þessu tilefni færa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur þakkir fyrir störf hennar á Alþingi. Ég óska henni fyrir hönd okkar allra velfarnaðar í framtíðinni.
Við þingmennskuafsal Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur tekur Árni Helgason sæti á Alþingi og verður 13. þm. Suðvesturkjördæmis, Bryndís Haraldsdóttir verður 1. þm. kjördæmisins, Rósa Guðbjartsdóttir 5. þm. Suðvesturkjördæmis og Jón Gunnarsson verður 9. þm. Suðvesturkjördæmis.
Árni Helgason hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.