157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

breytingar á starfsáætlun.

[15:03]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti hefur ákveðið, að höfðu samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka, að gera breytingar á starfsáætlun Alþingis. Samkvæmt starfsáætlun eru nefndadagar 21. og 22. maí en ákveðið hefur verið að hafa þingfundi þá daga. Í stað þeirra yrðu nefndadagar 18. og 19. maí, sem eru mánudagur og þriðjudagur, en þeir dagar voru þingfundadagar samkvæmt starfsáætlun.