157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti.

[15:12]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar hér að eiga orðastað við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra varðandi þá tillögu sem núna liggur fyrir þinginu og snýr að lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti úr 24% í 11%. Við í Framsókn höfum lagt fram tillögur í efnahagsmálum þar sem þetta var m.a. lagt til ásamt fleiri hugmyndum, svo sem að lækka kolefnisgjald á eldsneyti sem myndi þá ekki aðeins nýtast heimilum landsins heldur einnig fyrirtækjum sem finna ekki síður en heimilin í landinu verulega fyrir hækkandi eldsneytisverði. Lækkun á virðisaukaskatti ein og sér nýtist takmarkað fyrirtækjum þar sem þau geta innskattað á móti, eins og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra veit vel og kemur fram í greinargerð frumvarpsins. Með lækkun kolefnisgjalds lækkar rekstrarkostnaður fyrirtækja sem mun hafa áhrif á verð á þjónustu til lækkunar eða a.m.k. sporna við frekari hækkunum sem hefur áhrif á þróun vísitölu með jákvæðum formerkjum.

Því langar mig að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort slíkt hafi verið skoðað við gerð tillögunnar og hvers vegna ekki hafi verið farið í slíka breytingu fyrir fyrirtækin og heimilin í landinu. Boðuð breyting á virðisaukaskatti lækkar vísitölu um 0,3%, sem er jákvætt, en það er ljóst að eitt og sér dugar þetta ekki til. Það þarf frekari aðgerðir, heildstæðan aðgerðapakka sem og samráð við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins til að kalla fram nýja þjóðarsátt. Því spyr ég hæstv. ráðherra einnig: Hvernig var staðið að slíku samtali í aðdraganda frumvarpsins eða var ekkert slíkt samtal tekið?