157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti.

[15:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir svarið. Það er líka dýrt að gera ekki neitt, virðulegur forseti, eða lítið. Verðbólgan og vextirnir eru dýr. En ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í eina af tillögum okkar í Framsókn er viðkemur lækkun á virðisaukaskatti á matvælum úr 11 í 7% sem myndi hafa veruleg áhrif á lækkun vísitölunnar og þar með lækka verðbólgu um 0,5%. Ég og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra höfum átt samtal um þetta áður, virðulegur forseti, þar sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra var ekki hlynntur slíkri aðgerð og sagði m.a. að um of almenna aðgerð væri að ræða og það þyrfti að fara í sértækar aðgerðir. Nú liggur hins vegar fyrir lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti sem er almenn aðgerð, ekki sértæk. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann sjálfur og hæstv. ríkisstjórn séu ekki komin með fordæmi fyrir almennri aðgerð til þess að lækka kostnað heimilanna í landinu, lækka verðbólgu (Forseti hringir.) og ná vaxtastiginu niður, sem er stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja landsins í dag.