fjármögnun samgönguframkvæmda.
Frú forseti. Um helgina fór ég ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, formanni og þingflokksformanni til Vestmannaeyja að kynna okkur stöðuna í samgöngum í Eyjum og staðan er vægast sagt hrikaleg. Sjálfur er ég búinn að bregðast við því með því bæði að senda tölvupósta og hringja í það dýpkunarfyrirtæki, Jan De Nul, sem getur og hefur sinnt verkefninu að halda höfninni opinni en er ekki með samning núna. Landeyjahöfn hefur verið lokuð verulegan hluta ársins 2026. Það er val ríkisstjórnarinnar enda hægt að halda höfninni opinni með fyrirhyggju og metnaði. Foreldrar sem þurfa að fara með barn til læknis frá Eyjum til Reykjavíkur þurfa að gera ráð fyrir a.m.k. 11 klukkustunda ferðalagi og líklegast með gistingu. Skip landa síður afla í Vestmannaeyjum vegna þess að samgöngur eru í algjöru uppnámi. Engin trygging er fyrir því að afurðir komist á markað frá Eyjum. Verkafólk í Eyjum situr eftir með sárt ennið og vinnan flyst annað. Dugmiklar fjölskyldur hafa lagt allt sitt undir og byggt upp lítil ferðaþjónustufyrirtæki og þau eru í algjörri efnahagslegri spennitreyju. Þessi fyrirtæki eru með starfsfólk og það starfsfólk er með skuldbindingar. Þessu fólki þarf að borga laun og þetta fólk þarf að borga af lánum og það þarf að lifa. Ófyrirsjáanleiki hafnarinnar er eins og kyrkingaról á öllu samfélaginu í Vestmannaeyjum. Staðan er löngu þekkt og ég minni á val stjórnvalda. Hvers vegna hefur ekki verið leitað fyrr til þeirra aðila sem sýnt hafa fram á að geta haldið höfninni opinni? Mun hæstv. fjármálaráðherra verða velviljaður ef aukinn kostnaður myndast við bráðaaðgerðir í málinu?