157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

fjármögnun samgönguframkvæmda.

[15:31]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að þunnt hafi verið. Það er alveg ljóst að flugið er í algjöru skötulíki og það geta allir Eyjamenn vottað um enda rétt náðum við Sjálfstæðismenn að skipta út mönnum inn í flugið til að komast til Eyja. Það er neyðarástand sem ríkir í samgöngum í Eyjum og menn hafa haft fleiri vikur til að bregðast við. Sjálfur hringdi ég í fyrirtækið og hafði samband við þann sem stýrir því og hann segir að það taki tvær vikur að gera höfnina haffæra fyrir Herjólf. Hefðu menn hringt í febrúar þá væri löngu búið að opna höfnina.

Hæstv. ráðherra minnist á flugið. Ætlar hæstv. ráðherra að gera eitthvað í því, á meðan þetta neyðarástand vofir yfir og er ríkjandi í Eyjum, að bæta flugsamgöngurnar? Því að flugið er í algjöru skötulíki. Það er ekkert flogið ákveðna daga og það er ekkert flogið á laugardegi. Ætlar hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) að hlutast til um það? Hann er partur af þessari ríkisstjórn sem ber ábyrgð á ástandinu. Þrátt fyrir að hann firri sig hér ábyrgð í gegnum annan ráðherra sem er ekki mættur hér í salinn þá spyr ég hæstv. ráðherra: Ætlar hæstv. ráðherra að hlutast til um það að ríkisstjórnin grípi til (Forseti hringir.) bráðaaðgerða þannig að það verði alla vega einhvers konar flugbrú til Eyja þannig að fólk komist þangað til og frá án þess að þurfa að eyða í það heilu og hálfu sólarhringunum?