157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

fjármögnun samgönguframkvæmda.

[15:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Mér finnst nú að vísu dálítið ómaklegt að segja að ég firri mig ábyrgð þegar ég hef tekið fram að það hefur verið tryggt fjármagn til að viðhalda flugsamgöngum til Eyja. Ég bíð þess spenntur hvort ég fái í kjölfarið margar spurningar um biðlista í heilbrigðisþjónustu eða annað það sem heyrir undir önnur ráðuneyti. Ég vona að hv. þingmaður sýni því skilning að það eru 11 ráðuneyti og þótt ég sé fjölhæfur maður þá get ég ekki sinnt öllum störfum allra ráðherra. Ég hygg meira að segja að það myndi leggjast illa í hæstv. innviðaráðherra ef ég reyndi slíkt en get þó glatt hann með því að það er, eins og komið hefur fram í ákvörðunum ríkisstjórnarinnar hingað til, fullur vilji til að taka á þessu máli. Það hefur verið tryggt fjármagn til flugsins til Eyja, einmitt nákvæmlega til þess að viðhalda þessari lífæð á meðan siglingarnar eru til Þorlákshafnar.