157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

útgjöld til loftslagsmála.

[15:34]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að beina fyrirspurn til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra í tilefni af viðtali sem birtist við hæstv. ráðherra á visir.is núna rétt fyrir hádegið. Ég hef undanfarin misseri verið að leita svara um kostnað ríkisins af loftslagsaðgerðum á vegum þess og í þessu viðtali minnist hæstv. ráðherra einmitt á kostnaðinn við þessi loftslagsmál. Ég hef komist að því í svörum nokkurra hæstv. ráðherra að við erum að verja 257.000 milljónum síðustu 13 árin í loftslagsmál. Við höfum varið 18.000 milljónum á ári síðustu átta árin. Við munum verja 22.000 milljónum á ári, á þessu ári og næstu þrjú árin, í þessar aðgerðir.

Mér hefur gengið illa, frú forseti, að fá fullnægjandi svör við því hvert þessir fjármunir hafa runnið. Ekki síður hefur gengið brösuglega að fá upplýsingar um hvaða aðilar hafa verið viðtakendur þessara skattpeninga okkar. Auk þess, frú forseti, hefur gengið erfiðlega og engin svör hafa fengist við því hvaða árangur hefur verið af öllum þessum fjáraustri og hvernig þessi árangur hefur yfirleitt verið mældur. Getur hæstv. ráðherra hjálpað mér eitthvað í þessum efnum? Hvaða kröfur myndi t.d. hæstv. ráðherra gera um það í hvað slíkum fjáraustri sé varið og hvernig árangurinn sé mældur af slíkum aðgerðum? Hvaða kröfu myndi hæstv. ráðherra gera í þeim efnum og hefur hæstv. ráðherra einhverja hugmynd um það hver árangurinn hefur verið á umliðnum árum? Við erum búin að eyða meira en 114 milljörðum í þessi verkefni. Hver hefur árangurinn verið samkvæmt vitneskju hæstv. ráðherra?

Ég ætla einnig að spyrja hæstv. ráðherra um ETS-kerfið, sem hún minnist einnig á í þessu viðtali þar sem hún segir að hún vilji segja sig frá öllu slíku samkomulagi, hvað hún meini með þessum orðum.