157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

útgjöld til loftslagsmála.

[15:37]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ánægjulegt að hann skuli lesa viðtölin við mig, enn ánægjulegra en margt annað. Auðvitað á þessi fyrirspurn um tæknilegar útfærslur á málinu og hvert peningarnir eru raunverulega að fara kannski frekar heima hjá umhverfis- og loftslagsráðherranum okkar. Hins vegar hef ég alltaf verið skýr með það að ef það á að fara að refsa okkur sem erum í rauninni að menga einna minnst í heiminum — við erum sjálfsagt með hátt í 85% af allri okkar orku endurnýtanlega og græna, það er eiginlega hafsjór á milli þess sem næsta þjóð gæti státað af ef hún ætlaði að reyna að nálgast okkur að þessu leyti — þá finnst mér forgangsröðun fjármuna miðað við innviðaskuldir hér og hvernig fjármununum er varið ekki rétt og mér finnst heldur ekki rétt að ætla að liggja á liði mínu og mínum skoðunum hvað það varðar. Kjósendur eiga rétt á því að vita hvað þessi kona hugsar og hver hennar stefna og Flokks fólksins er. (Gripið fram í.)

Eins og með ETS-kerfið, hvað höfum við að gera með það þegar við vitum að þetta kerfi er fyrst og síðast hvati til meginlandsins um að nýta frekar lestarsamgöngur til að spara kolefnissporið og annað slíkt? Þá segi ég: Við höfum ekkert með það að gera, ekki neitt. Þannig að minn hugur stendur meira að því að við þurfum ekki að fara að segja okkur frá einu eða neinu heldur verði tekið tillit til okkar í samkomulagi við Evrópusambandið. Þeim er í rauninni í lófa lagið að skilja að við erum pínulítið öðruvísi, að við erum hér eyja norður í ballarhafi og að um þetta ETS-kerfi eigi ekki að gilda reglur hvað lýtur að okkur. Við eigum að vera algjörlega undanskilin, enda er þetta verulega íþyngjandi og ekki markmiðið með ETS-kerfinu að kreista úr svona litlu samfélagi eins og okkar sem þetta kerfi, markmiðið með því, á í rauninni ekkert við.

Þannig að hvað við höfum gert við alla þessa tugi milljarða, hundruð milljarða sem hv. þingmaður kemur réttilega inn á? Ég hef bara ekki hugmynd um það, ekki græna glóru frekar en kannski margir aðrir. (Forseti hringir.) Ég bara viðurkenni það. Ég er aumur mennta- og barnamálaráðherra núna en þetta er í rauninni alls ekki það sem er á minni — ég myndi hugsanlega vita það (Forseti hringir.) ef ég væri í umhverfis- og loftslagsráðuneytinu, ef nokkur veit það þá.