útgjöld til loftslagsmála.
Frú forseti. Ég heyri að hæstv. ráðherra er mér sammála að mörgu leyti í þessum efnum. Ég fagna því að við eigum auðvitað ekki að vera sett undir regluverk Evrópusambandsins að þessu leytinu til sem tekur tillit til einsleitni aðstæðna í Evrópu, en ekki hér á landi, þar sem fólk getur ferðast á milli landa á bíl eða í lestum. Í framhaldi af því myndi ég vilja spyrja hæstv. ráðherra: Hversu langt er hæstv. ráðherra tilbúinn að ganga í þessum efnum? Hvað þarf til að mati hæstv. ráðherra svo við getum losað okkur undan þessum kaupum á losunarheimildum? Hvernig hyggst hæstv. ráðherra vinna að því? Er hann að tala um að segja okkur frá ETS-kerfinu? Hvaða afleiðingar mun það hafa? Er ríkisstjórnin með það í athugun núna?
Svo rétt í lokin, af því að hæstv. ráðherra er svo sammála mér: Hvernig getur það verið að hæstv. ráðherra, sem hefur svona miklar áhyggjur af fjármunum skattgreiðenda, standi svo að því, ásamt félögum sínum í hæstv. ríkisstjórn, að stórhækka nýverið loftslagsgjöld á bifreiðaeigendur í formi svokallaðra kolefnisgjalda? Hvernig má þetta vera?