útgjöld til loftslagsmála.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurnina. Ekki kannski skrýtið þó að við séum sammála um eitthvað. Hv. þingmaður var búinn að vera svolítið náinn mér um tíma þannig að eðli málsins samkvæmt þá hlýtur hann að hafa verið sammála mér að einhverju leyti um eitthvað. (Gripið fram í: Segðu okkur meira. )Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar. [Hlátur í þingsal.] Hvað sem því líður og fyrst ég er komin í þennan gírinn þá segi ég það nú — af því að ég veit hvort sem er ekkert hvað ég er að fara að segja — já, þá vil ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir frábæra fyrirspurn. [Hlátur í þingsal.] Nú man ég hvað ég ætlaði að segja. Ég ætlaði að segja að það er ánægjulegt að hlusta á hv. þingmann þegar hann er að taka svona einhvern veginn líka eins og hann hafi lært af mér hvernig hann á að fara í ræðuna, byrjar svona rólega og svo æsist hann alltaf upp og er orðinn brjálaður (Forseti hringir.) þegar fyrirspurninni er lokið. En þarna deilum við heila og það liggur alveg fyrir.