utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Það sem ég vil undirstrika er að á sínum tíma þegar voru fengnir styrkir, eins og fyrir þýðingar og fyrir einhver verkefni sem m.a. ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sagt Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, vildi klára, þá voru ýmis verkefni studd. Svo er verið að tala um að það sé aðlögun. Hvar er sú aðlögun sem á að hafa átt sér stað þegar þau verkefni voru studd? Hvar er sú aðlögun? Með fullri virðingu fyrir hv. þingmanni sem mér þykir vænt um og ber virðingu fyrir, þá finnst mér þetta vera orðhengilsháttur eða tilraun til að afvegaleiða umræðuna. Það hefur engin aðlögun átt sér stað frá þessum rammasamningi sem Jóhönnustjórnin gerði á sínum tíma. Ég undirstrika það líka að þetta er rammasamningur sem var viðhaldið af hálfu allra þeirra ríkisstjórna sem komu í kjölfarið af því að hann var fullgiltur, vel að merkja, og engar af þessum ríkisstjórnum fóru með hann hingað fyrir þingið til að fá heimild frá þinginu til að segja sig frá honum. Bara þannig að það sé skýrt, höfum það einfalt: Það var engin aðlögun sem átti sér stað. Það voru einhverjir styrkir sem voru veittir, m.a. til þýðinga. Það er annaðhvort að þetta má ekkert kosta og síðan þegar Ísland fær styrki til að gera hluti sem mér finnst vera góðir, að snara ýmsum gerðum og tilskipunum yfir á íslensku, má heldur ekki fá stuðning í það. Ég vil bara hafa það á hreinu: Sá rammasamningur sem var gerður og felur í sér styrki fól ekki í sér neina aðlögun. Þá vil ég biðja hv. þingmann að benda mér á þá aðlögun sem hefur átt sér stað á grundvelli þeirra styrkja. Vel að merkja: Það voru ekki Íslendingar sem riftu þessum samningum illu heilli, heldur var það Evrópusambandið sem rifti einstökum verkefnum svo ekkert varð af frekari styrkveitingum. En ég mun fara betur yfir það í mínu síðara andsvari.