utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Þetta er náttúrulega alrangt. Eins og hæstv. ráðherra veit er þetta byggt á þingsályktun og eins og hæstv. ráðherra veit, sem er með mikla þingreynslu, er það alls ekki þannig að menn líti svo á að þingsályktun sem samþykkt var á einhverju þingi sé enn í gildi. Þessi ríkisstjórn segir samt sem áður að þingsályktanirnar frá þessum tíma séu í gildi. Hæstv. ráðherra leyfir sér að segja að hér sé ekki um neina aðlögun að ræða. Þetta er samningur um aðlögun og segir t.d. á bls. 9 að „aðstoð skal vera í samræmi við stefnumið ESB og stuðla að samræmingu við réttarreglur ESB“. Þetta eru ekki bara þýðingar, virðulegi forseti, því að það kemur alveg skýrt fram í skýrslum utanríkisráðherra frá þeim tíma að þetta miðar allt að því að aðlaga þetta að regluverki Evrópusambandsins. Gott dæmi sem menn treystu sér ekki til að klára, sem betur fer, var að það þurfti að aðlaga tollakerfi Íslands að Evrópusambandinu. Það hefði þýtt að það þyrfti að fjármagna nýtt tollakerfi upp á 3,8 milljarða. Það hefði þýtt, eins og kom fram í gögnum frá þeim tíma, rýniskýrslum, að það þyrfti að fjölga starfsmönnum tollsins um nokkur hundruð og síðan yrðu auðvitað hækkaðir tollar á ýmsum vörum. Það segir skýrt, t.d. í skýrslu utanríkisráðherra frá 2013, að það var krafa Evrópusambandsins að kerfin þyrftu að vera tilbúin og prufukeyrð fyrir aðild. Hæstv. ráðherra er kominn algerlega út í mýri í þessu máli. Hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin segja að þetta sé í gildi. Þessi samningur og þingsályktunin ganga út á það að það voru settar 8.000 milljónir í að aðlaga Ísland að regluverki Evrópusambandsins. Og hví skyldi Evrópusambandið vera að setja fjármuni, og þetta eru ekki litlir fjármunir, í eitthvað annað? (Forseti hringir.) Mér finnst alveg ótrúlegt að hæstv. ráðherra ætli að reyna að halda einhverju öðru fram í umræðunni. (Forseti hringir.) Ég spyr hæstv. ráðherra og hæstv. ráðherra hefur ekki enn þá svarað því: Af hverju á ekki að kynna þetta fyrir þjóðinni? Þetta liggur allt saman fyrir og (Forseti hringir.) það geta allir flett þessu upp sem það vilja.
(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörkin.)