157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[16:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir það sem m.a. kom fram í nýju stefnunni okkar um varnar- og öryggismál; meginstoðirnar eru aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og síðan varnarsamningurinn við Bandaríkin. Samskipti við Bandaríkin á sviði varnar- og öryggismála síðustu mánuði og misseri hafa verið góð. Eins og hv. þingmaður veit þá hefur aðeins verið annað viðhorf þegar kemur að tollum og viðskiptum en það er önnur saga. Við höfum síðan gert nákvæmlega það sem aðrar þjóðir hafa verið að gera. Bæði Svíar og Finnar gengu í NATO til að styrkja öryggi sitt og segja að þetta séu tvær hliðar á sama pening, að vera bæði í Evrópusambandinu og í NATO, sérstaklega Finnar sem eru með lengstu landamæri að Rússlandi. Danir yfirgáfu fyrirvara, vel að merkja, undanþáguna sem þeir voru með frá öllum varnarhlutum Evrópuréttarins og afléttu honum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við erum að sjá ríki eins og Noreg gera fleiri og fleiri tvíhliða samninga við Evrópusambandið. Við erum búin að gera það líka. Við erum að sjá Ástralíu gera samning við til að mynda Evrópusambandið. Við erum að uppfæra minnisblöð frá 2010 um varnar- og öryggismál við Kanada og ég bind vonir við að ég skrifi innan tíðar undir yfirlýsingu með Norðmönnum um ákveðin mál. Við erum líka að fara í samstarf með Kanada, Norðmönnum og Dönum hér á Norður-Atlantshafinu sem skiptir okkur mjög miklu máli, hvort sem það er í tengslum við öflugra samstarf og innsýn okkar inn í til að mynda dróna, ekki bara drónaframleiðslu heldur drónanotkun á þessu sviði. Ábyrgð okkar liggur í því að fjölga þessum undirstöðum. Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir aðild okkar að NATO. Það er ekki þannig. Það skiptir öllu máli að NATO haldi sér en við erum að fjölga fleiri undirstöðum í þeirri hverfulu veröld sem við lifum í í dag.