157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[16:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hæstv. utanríkisráðherra varðandi drónahernað í heiminum og hvernig hann hefur þróast og hvernig þetta hefur þróast í Úkraínu og það sem við höfum lært núna nýlega við Persaflóa og það sem er í gangi þar tengt Íran. Drónahernaður hefur gjörbreytt öllum hernaði í heiminum og þetta er sérógn sem við Íslendingar þurfum að kanna sérstaklega hér á okkar slóðum. Þetta er með allt öðrum hætti heldur en við höfum séð áður og þetta er miklu ódýrara. Þetta er líka ógn sem gæti tengst hefndarverkahópum eða slíkri ógn. Þetta er algerlega nýtt svið.

Ég vil hins vegar ítreka, eins og ég hef gert hér á síðustu árum, að Svíar og Finnar gengu í Atlantshafsbandalagið og sóttu um í maí 2022, rétt eftir að stríðið í Úkraínu hófst. Það var fyrst og fremst vegna þess að þeir treystu ekki á varnir Evrópusambandsins, enda er 7. liður 42. gr. Lissabon-samningsins sem snýr að vörnum með allt öðrum hætti heldur en Atlantshafsbandalagið vinnur. Svíar og Finnar hafa ítrekað í umræðu að þeir þurfi á NATO að halda. Í framhaldi af því hafa þeir líka gert samninga við Bandaríkjamenn sérstaklega og lagt áherslu, eins og margar aðrar þjóðir í norðanverðri Evrópu, á sérstaka varnarsamninga við Bandaríkin. Í allri umræðu á bak við tjöldin eða í heimsóknum og öðru þar sem Bandaríkjamenn eru heimsóttir kemur alltaf fram: Við erum fullkomlega áfram með Evrópu í varnar- og öryggismálum þó að efsta lagið sé að tala með ákveðnum hætti sem við þekkjum. Það þarfnast nú kannski dýpri og meiri umræðu. Svo eru það náttúrlega norðurslóðamálin og þá er kannski helsta áherslan og spurningin: Hvernig sér hæstv. utanríkisráðherra þróun Kanada, Bretlands, Noregs og annarra þjóða við Norður-Atlantshafið fyrir sér?