157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[16:44]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna og framsögu hennar og yfirferð. Ástæða er til að hrósa starfsfólki utanríkisþjónustunnar fyrir framlagið, vel fram setta og yfirgripsmikla skýrslu. Eins og farið er yfir í inngangi skýrslunnar hafa horfur og ástand í heiminum því miður ekki orðið betri nema síður sé á þeim tíma sem liðinn er frá síðustu skýrslugjöf. En það þýðir ekki að gefast upp við þessar erfiðu aðstæður. Við höfum verið að þétta raðirnar með okkar helstu bandamönnum. Á þeim tíma sem við Sjálfstæðismenn vorum í utanríkisráðuneytinu var lögð höfuðáhersla á að þétta raðirnar einmitt með Norðurlöndunum, Bretlandi, Eystrasaltslöndunum, Asíu og síðast en ekki síst Bandaríkjunum.

Þessi staða og væringar í heimsmálum hafa verið mér mjög ofarlega í huga síðastliðnar vikur. Ég var á ferðalagi í Bandaríkjunum í boði bandarískra stjórnvalda og það var gott og mikilvægt að finna það hvað við eigum gott samstarf þar á mörgum sviðum, heyra hversu jákvæðir Bandaríkjamenn eru í okkar garð, fá staðfestingu á gagnkvæmum vinskap og vináttu okkar vestan hafs. Maður er nefnilega ekki ónæmur fyrir breytingunum hjá bandarískum stjórnvöldum og kannski ekki síður umtalinu um stöðuna þar og auðvitað ekki ónæmur fyrir áhyggjum af þessari þróun. Mér finnst því gott að flytja þinginu góðar fréttir frá samstarfmönnum okkar í Bandaríkjunum, frá stjórnvöldum, fræðimönnum og atvinnulífinu.

Ég var sömuleiðis á ferð um Víetnam sem varaformaður þingmannanefndar EFTA, en við erum á lokametrunum að klára þar fríverslunarsamning í þessu öfluga samstarfi sem EFTA er. Öflugir fulltrúar utanríkisráðuneytisins þar róa að því öllum árum. Yfir 100 milljónir manna búa í Víetnam og hagur þeirra hefur batnað gríðarlega undanfarin ár með miklum hagvexti og aukinni hagsæld. Þar gætu því verið mikil tækifæri fyrir íslenska útflytjendur, verði fríverslunarsamningur að veruleika. Það eru sem sagt ekki bara blikur á lofti og vondar fréttir að utan þótt ég geri ekki lítið úr þeim.

Ég get þannig tekið undir byrjun inngangsorða hv. ráðherra, m.a. um mikilvægi þess að við höldum áfram að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í alþjóðasamstarfi og að við þurfum að byggja upp sterk og góð tengsl við nágranna- og vinaþjóðir. Ég er hins vegar algjörlega ósammála útleggingum hæstv. ráðherra sem telur það vera nauðsynlegt skref í þessum efnum að stíma í átt að aðild að Evrópusambandinu. Þjóðin hefur enda ítrekað hafnað því í að setja ESB-aðild á dagskrá, og það er langt í frá meiri hluti fyrir ESB-aðild hér á Alþingi. Við erum tiltölulega nýbúin að kjósa og þjóðin hafnaði þessu máli þá. Þá var hafið allsherjarstríð í okkar heimsálfu, skýrsla utanríkisráðherra á því ári fjallar ekkert um regnboga og rósir. En þetta er bara staðan, þessi ríkisstjórn vill sæta færis og reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið af þessu tilefni. Síðast var efnahagshrunið stóra ástæðan til þess. Það er alltaf einhver krísa og svarið er alltaf ESB. Ég vona að við berum gæfu til þess að ræða þau mál út frá staðreyndum og hagsmunamati fyrir Ísland, að stjórnvöld verði heiðarleg og veiti þær upplýsingar sem þjóðin þarf að fá til að taka afstöðu til þessa skrefs í átt að ESB-aðild Íslands.

Inngangur skýrslunnar er sérstaklega vel skrifaður, vert að hafa orð á því. Það er mikilvægt að við rifjum upp söguna, hvernig við höfum talað skýrt fyrir virðingu fyrir lögum, mannúð, mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Þar er sérstaklega minnst á þróunarsamvinnu Íslands, og ekki vanþörf á. Ég á sæti í þróunarsamvinnunefnd og þar höfum við séð þróun sem er ástæða til að hafa verulega áhyggjur af. Það er dregið úr framlögum og samvinnu.

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir staðfestu og fyrir að fylgja nágranna- og vinaþjóðum okkur að málum í málefnum Úkraínu. Það er hægt að nefna margt í þessu samhengi en mig langar að nefna sérstaklega þátttöku okkar við styrkingu og uppbyggingu orkuinnviða og stuðning við orkumál í Úkraínu.

Og af því ég er farin að ræða þróunarsamvinnu og starfið í alþjóðastofnunum langar mig að nefna sérstaklega málefni Súdan, sem ég hef gjarnan tekið upp hér á Alþingi, m.a. með fyrirspurnum til hæstv. ráðherra. Ef við erum að forgangsraða áherslum í fjarlægari heimshlutum út frá neyð held ég að það sé óhætt að segja að ástandið í Súdan væri meira áberandi í okkar störfum. Gleymda stríðið. Þar hefur geisað og geisar enn ein sú mesta neyðar- og mannúðarkrísa sem heimurinn hefur staðið frammi fyrir. Ein birtingarmynd stríðsins þar eru kerfisbundnar nauðganir þar sem milljónir kvenna og stúlkna hafa verið beittar kynbundnu ofbeldi. Þar eru litlar stúlkur ekki undanskildar. Tugir milljóna hafa látist, flúið og þolað hungursneyð. Það eru sár vonbrigði hvernig alþjóðasamfélagið hefur brugðist íbúum Súdan. Það hefur ekki verið í tísku að taka þann slag. Því er jákvætt að lesa yfirferð yfir áherslur Íslands innan Sameinuðu þjóðanna, m.a. þegar kemur að Íran og Súdan. En betur má ef duga skal og ég hvet hæstv. ráðherra til að beita sér enn frekar.

Og talandi um Íran. Staða mannréttinda í Íran hefur verið ömurleg og frelsi fólks verulega takmarkað. Borgarar verið ofsóttir, fangelsaðir, pyndaðir og drepnir af yfirvöldum, kvenréttindi lítil og samkynhneigð hefur varðað dauðarefsingu. Skömmu áður en ráðist var inn í Íran hafði klerkastjórnin brotið á bak mótmæli með hryllilegu ofbeldi og morðum á saklausum borgurum. Nú ríkir mikil óvissa um framhaldið, og ég hvet hæstv. ráðherra til að hafa augun á boltanum, hafa hagsmuni írönsku þjóðarinnar í fyrirrúmi í orðum og gjörðum. Að hugsa sér að Íran hafi verið kjörið til setu í nefnd á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Íran? Íran valist til varaformennsku í nefnd innan Sameinuðu þjóðanna sem fjallar m.a. um réttindi kvenna. Ég hef áður gert svona ákvarðanir hjá Sameinuðu þjóðanna að umtalsefni hér enda draga þær úr og grafa undan trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna.

Í skýrslunni er farið ágætlega yfir gott samstarf okkar við Norðurlöndin og við Evrópuríkin. Eins og ég fór hér stuttlega yfir áðan þá þéttum við í Sjálfstæðisflokknum þegar við sátum í stóli utanríkisráðherra verulega raðirnar með þessum vinaþjóðum okkar og það er mikilvægt og gott að við höldum því áfram. Það er vel hægt að gera án þess að ganga inn í Evrópusambandið eða heldur einhver því fram að Ísland og Noregur séu minni vinir eða bandamenn Norðurlandaþjóða? Evrópu? NATO? Ég gæti haldið upptalningunni áfram. Þau skilaboð hef ég hvergi fengið í mínum störfum nema síður sé.

Í skýrslunni er síðan að finna myndir og sérstaka umfjöllun um heimsókn Ursulu von der Leyen til Íslands. Vel var tekið á móti henni hér og það er gott. Við eigum að rækta sambandið við forsvarsmenn vinaþjóða og bandalaga. Það eru hins vegar sár vonbrigði að skömmu eftir heimsóknina hafi forseti framkvæmdastjórnarinnar tekið þátt í því að beita Ísland ólögmætum tollum í trássi við EES-samninginn. Heimsóknin virðist því ekki hafa verið nýtt til þess að tala fyrir hagsmunum Íslands í þeim efnum.

Virðulegi forseti. Það er síðan óhætt að taka undir orð í skýrslunni um að Bandaríkin séu, með leyfi forseta, „lykilsamstarfsríki Íslands á sviði öryggis-, varnar- og viðskiptamála“ og að við eigum að „hlúa að og treysta góð tvíhliða samskipti milli Íslands og Bandaríkjanna“. Ég hef haft áhyggjur af því að íslensk stjórnvöld rækti nefnilega þessi samskipti ekki nógu vel. Þeir sem fletta gegnum skýrsluna, eins og ég hef gert, sjá að það vantar tilfinnanlega myndir og lýsingar af þessum mikilvægu samskiptum. Fyrirspurn mín um ferðalög hæstv. ráðherra, og það sem hefur komið fram, ekki bara frá þessum hæstv. ráðherra heldur öðrum hæstv. ráðherrum, segir bara ágætissögu um það. Við vitum að aðrar Norðurlandaþjóðir hafa til að mynda sent ekki bara utanríkisráðherra heldur ráðherra í fleirtölu í ferðir til Washington.

Virðulegi forseti. Mig langar líka að nefna styrkingu til austurs, sóknarfærin í Asíu. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn sat í utanríkisráðuneytinu var lögð mikil áhersla á sóknarfæri í Asíu. Ég hef þegar nefnt ferð mína til Víetnam og tækifærin sem eru á þessum markaði og mig langar til að hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þessum efnum. Við getum ekki verið alls staðar, við getum ekki gert allt og ofurfókus og -áhersla á aðild Íslands að ESB tekur orku, mannafla og fjármuni sem þá nýtast ekki til styrkingar á öðrum sviðum.

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að fagna áframhaldandi áherslu á samstarf við Kanada. Ég óskaði eftir því í utanríkismálanefnd að við tækjum þessi samskipti sérstaklega til umfjöllunar og sömuleiðis hefur þingmannanefnd EFTA sett þessi mál, aukin samskipti við Kanada, á dagskrá. Ég fagna þessu alveg sérstaklega.

Talandi síðan um okkar eigin varnir, virðulegi forseti. Mér heyrist við flest sammála um mikilvægi aðildar að NATO og varnarsamningsins við Bandaríkin og sömuleiðis um mikilvægi þess að Ísland tryggi viðbúnaðargetu í samræmi við skuldbindingar sínar í öryggis- og varnarmálum. Þarna hefur hæstv. utanríkisráðherra verið mjög skýr í sínum málflutningi. Nágranna- og samstarfsríki okkar hafa stóraukið útgjöld til öryggis- og varnarmála í takt við aukna spennu og óstöðugleika í umhverfi okkar. Undanfarin ár hafa þessi mál verið tekin alvarlega af utanríkisráðherrum Sjálfstæðisflokksins og síðan er verið að halda þessari vinnu áfram. Það er mjög vel. Við eigum að taka áfram virkan þátt í varnartengdum verkefnum og viðhalda varnarinnviðum okkar í samræmi við þjóðaröryggisstefnu Íslands. Þannig tryggjum við áframhaldandi frið á okkar friðsælu eyju.

Þegar kemur að öryggis- og varnarmálum er mikilvægt að við gerum okkar, að við stöndum okkar plikt og við séum ábyrgur og verðugur samstarfsaðili. Mér gefst örugglega færi á að fara betur yfir heimsókn mína til Bandaríkjanna en meðal þess sem ég tók út úr þeirri ferð, sem er auðvitað bara algjörlega sjálfsagt, er að það sé undirstrikað að þeir sem taka þátt í sameiginlegum vörnum, taka þátt í varnarsamstarfi, taka þátt í varnarbandalögum séu ábyrgir samstarfsaðilar.

Ég gæti staðið hér í allan dag og rætt utanríkismál. Þau eru mér svo mikið hjartans mál og ég veit að hæstv. ráðherra er sama sinnis. Við þingmenn hér á virðulegu Alþingi höfum um svo margt verið samstiga í utanríkismálum á undanförnum árum. Það þekki ég af því að hafa verið aðstoðarmaður utanríkisráðherra og setið í utanríkismálanefnd Alþingis núna á mínu öðru kjörtímabili. Þessi ríkisstjórn hefur hins vegar rekið ákveðinn fleyg í þá samstöðu með því að setja aðild að ESB á dagskrá. Starfið í utanríkismálanefnd hefur þannig til að mynda litast mjög af því, því miður. Við sem treystum íslensku þjóðinni treystum henni til að halda áfram sjálf á sínum málum og framselja ekki svo umfangsmikið vald til Brussel. Við vonum og trúum að þessum leiðangri ríkisstjórnarinnar ljúki með áframhaldandi sjálfstrausti og trú íslensku þjóðarinnar á að það sem einmitt hefur virkað svo vel, fært okkur velmegun, fært okkur velsæld og fært okkur hamingju, fært okkur frá því að vera ein fátækasta þjóð í Evrópu í að vera ein sú ríkasta; nefnilega óskorað sjálfstæði og fullveldi Íslands.