utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vil taka undir það að hvert einasta skref sem við höfum tekið þegar kemur að alþjóðasamskiptum og það að vera hluti af fólkinu sem situr við borðið, hefur leitt til farsældar fyrir Ísland. Var það NATO? Já. Var það EFTA? Já. Var það EES-samningurinn? Já. Öll þessi skref hafa leitt til farsældar og verið til góða fyrir íslenskt samfélag. Ég er sannfærð um að með því að alla vega leyfa íslensku þjóðinni að sjá og klára samning við Evrópusambandið munum við sjá það að almenningur, fyrst og síðast almenningur, íslenskar fjölskyldur og íslensk fyrirtæki, sjái tækifærin í því að vera með stöðugan gjaldmiðil, fara í aukna samkeppni, ýta út fákeppni o.s.frv.
Ég vil hins vegar svara nokkrum mikilvægum atriðum og ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að nefna m.a. Íran og Súdan. Við höfum ítrekað vakið athygli á þessu skelfilega ástandi í Súdan á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Við höfum lagt okkur fram um að veita svonefnd sveigjanleg óeyrnamerkt framlög, sem ég veit að hv. þingmaður veit hvað er, til mannúðaraðstoðar í Súdan í gegnum stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Það skiptir okkur miklu máli. Það skiptir okkur líka miklu máli að hafa ítrekað sett málefni Íran á dagskrá og ég held að við séum sammála í þeirri afstöðu til klerkastjórnarinnar að hún er í rauninni bara dæmigerð hryðjuverkastjórn sem hefur því miður alið upp hryðjuverkasellur eins og Hezbollah og stutt við Húta og fleiri. Það er algerlega óásættanlegt og það er ógn við öryggi okkar allra.
Það sem ég vil hins vegar spyrja hv. þingmann að er varðandi mannréttindi. Ég heyrði að hv. þingmaður nefndi regnboga og rósir. Er hún ekki sammála okkur í því að leggja gríðarlega mikla áherslu á mannréttindi og jafnrétti eins og heimurinn er núna? Eigum við ekki alveg örugglega að láta rödd okkar heyrast á alþjóðavettvangi til að standa með fjölbreytileikanum, (Forseti hringir.) standa með jafnrétti kvenna og allra um heim allan þar sem við getum komið að þeirri skoðun og þeirri stefnu okkar Íslendinga?