157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:32]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir prýðisræðu og efnismikla og fagna sérstaklega áherslu hv. þingmanns á virðingu fyrir alþjóðalögum. Þetta er ekki bara kunnuglegt stef, þetta er mikilvægt stef fyrir okkur Íslendinga í allri okkar hagsmunagæslu hvar sem hana ber niður.

Mig langar líka að taka undir eitt og annað, m.a. mikilvægi EES-samningsins og að við verðum að halda áfram virkni EES-samningsins. Við getum ekki umgengist hann eins og eitthvert konfektbox eins og mér finnst stundum sumir þingmenn stjórnarandstöðunnar gera. Við þurfum að styðja við hann af festu því að það er mikið undir. Þegar hann var innleiddur á sínum tíma 1994, þá höfðu um 95–98% af íslenskum sjávarútvegi aðgang að evrópska markaðnum. Í dag vegna þróunar innan sjávarútvegs, nýrra afurða og fleira, eru það um 65%. Mér skilst að það séu hátt í 2 milljarðar, a.m.k. 1,5 milljarðar, sem íslenskur sjávarútvegur og um leið samfélagið fer á mis við við að vera ekki með þennan greiða aðgang að evrópskum markaði. Þetta er bara eitt af þeim dæmum sem myndu koma upp á yfirborðið ef við myndum fara í samningaviðræður. Og þá er ég kannski komin að spurningunni. Mig langar að vita hvar hv. þingmaður sér helstu sóknarfærin í okkar samningaviðræðum, vonandi, hvernig við getum stutt við íslenskt samfélag, hvernig við getum stutt við íslensk heimili ekki síst og fyrirtæki með því að klára samningaviðræður við þetta ríkjasamband sem ég minni á að tekur m.a. við 70% af útflutningi okkar Íslendinga. Þetta er gríðarlega mikilvægt svæði. Þess vegna vil ég líka draga fram að það var ákveðin depurð og leiði sem sótti að mér við hegðun Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, hvernig ég upplifði hana, við komu Ursulu von der Leyen síðastliðið sumar. Það var gagnrýnt (Forseti hringir.) með mjög ósmekklegum hætti að hingað kæmi talsmaður þessa svæðis, sem við seljum 70% af okkar afurðum til, og henni tekið með leiðinda — ekki tekið með silkihönskum. Fyrst og síðast fannst mér þær móttökur sem (Forseti hringir.) framkvæmdastjórinn fékk ekki til sóma og ekki undirstrika mikilvægi þess að við ætlum að standa vörð a.m.k. um EES-samninginn.