utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góðar spurningar. Með IPA-styrki, já, ég veit reyndar af nýsköpunarverkefnum sem runnu út í sandinn vegna þess að það var ekki hægt að ganga að styrkveitingum sem leiddu af fyrra umsóknarferli. Hver er ábyrgur fyrir því? Ég vil meina að það hafi ekki verið fyrirrennarar mínir hér og samflokksmenn sem sátu hér á þingi og gerðu sitt besta til að eiga í uppbyggilegum samningaviðræðum, bæði á vettvangi Evrópusambandsins í Brussel og síðan innan eigin ríkisstjórnar. Þannig að já, það voru neikvæðar afleiðingar af því að IPA-styrkir komu hingað til lands, þ.e. verkefni runnu út í sandinn, ekki það í prinsippinu að styrkirnir hefðu verið veittir. Samningsstaða Íslands er góð, hún er einstök, hún er allt önnur en hún var hér einu sinni. Ég verð að segja það vegna þess að hér er fast skotið á samflokksmenn mína í Noregi, að þeir séu áfjáðir í að halda málefnum Evrópusambandsins út fyrir sína pólitísku umræðu. Það er vel. Þetta fólk hitti ég reglulega og ég veit alveg hvar þau standa. En eitt skil ég ekki. Hvernig er hægt að vera svona hrikalega slappur hægri maður að skilja ekki að aukin samkeppni og lækkun gengisáhættu og minni fjármagnskostnaður eru til þess fallin að láta hér samkeppnisumhverfi blómstra? Þetta vita samflokksmenn Sjálfstæðisflokksins á Stortinget í Noregi. Þetta vita þau vel enda eru þau vakin og sofin yfir mikilvægi þess að Noregur taki aðra umferð og geri eins og við. Þau tala alla vega um það við mig. Það er eitthvað sem mér finnst mjög nærtækt. Ég ætla ekki mikið að vera í framíköllum með það.
Mér gefst ekki tími til að tala um starfsemi Arion banka í Færeyjum þar sem hann getur boðið lán í dönskum krónum eða færeyskum krónum réttara sagt. (Forseti hringir.) Þau eru talsvert ódýrari heldur en lánin sem við fáum að taka hér á Íslandi.