157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Atvinnuleysi er náttúrlega í hæstu hæðum sögulega á Íslandi akkúrat þessa dagana og þá getum við rætt bara ríkisstjórnina og þá stefnu sem er rekin hér að mörgu leyti. Það er margt svona sem (Gripið fram í.) hefur ekki unnið með ríkisstjórninni varðandi þau mál. En sögulega er þetta erfitt mál. Það er erfitt á Íslandi að vera með 7% atvinnuleysi. Það er kannski öðruvísi núna heldur en við höfum lent í áður vegna þess að þetta lendir leiðinlega á innflytjendum á Íslandi en hjá þeim sem eru með íslenskan bakgrunn er ekki mikið atvinnuleysi. Þess vegna verður þetta kannski ekki eins áberandi í umræðunni, að það er nánast ekkert atvinnuleysi þar. Ég held að allir hagfræðingar séu sammála um það að með því að taka upp evru sem er ótengd íslensku efnahagslífi þá er hinn þátturinn í því sá að þú eykur atvinnuleysi. Ég held að það hafi enginn sérstakan áhuga á því að ræða atvinnuleysi meðal ungs fólks í Evrópu, við Miðjarðarhafið er það upp undir 30%. Ég held að íslenskt samfélag væri í hræðilegu ástandi í allri umræðu ef við værum með tæplega 30% atvinnuleysi ungra Íslendinga undir þrítugu á vinnumarkaði. Þetta var nú umræða sem ég ætlaði ekkert í en það var boðið upp á hana hér. En það er mikilvægt að halda þessu til haga. Það má benda á að Pólverjar hafa staðið sig gríðarlega vel efnahagslega að undanförnu, þeir reka sinn gjaldmiðil og þeir eru kannski sú þjóð í Evrópu sem hefur notið mestrar efnahagslegrar velgengni, hvernig hlutirnir hafa þróast þar síðastliðin 20 ár og sýna kannski fordæmi um góða efnahagsstjórn í Evrópu. En það er ekki hægt að segja það um restina af Evrópusambandinu almennt (Forseti hringir.) enda hnignandi bandalag eins og við öll þekkjum og hagvöxtur verið ákaflega lítill frá aldamótum.