utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég biðst forláts á að hafa tælt hann á einhverjar slóðir sem hann vildi ekki fara með umræðuna út í. En, já, það sannast á þessu að með því að ganga í Evrópusambandið þá þyrftum við samt að axla ábyrgð á eigin innanríkismálum. Þó svo að við ætlum að tala um alþjóðamálin og utanríkismálin akkúrat núna þá finnst mér það ekkert óþægilegt sem jafnaðarmanni að ræða þessi mál í samhengi við það vegna þess að efnahagslegt öryggi og efnahagslegar varnir byrja bara heima. Varðandi það hvernig atvinnuleysistölur eru á Íslandi í dag þá hefur ítrekað verið bent á það af hálfu fulltrúa ríkisstjórnarinnar að þetta er svolítið tvískiptur hópur fólks. Innflytjendur sem hér hafa fest rætur til lengri eða skemmri tíma, komu hér í láglaunastörf sem nú eru ekki lengur til staðar vegna þess að hér var ekki mótuð kannski atvinnustefna til langs tíma, eru auðvitað í vondri stöðu. Ég þekki það líka bara mjög vel að menntuð ungmenni á Norðurlöndunum sjá ekki tækifæri eða fá ekki tækifæri til að nýta menntun sína og það hefur bara mikið að gera með ósjálfbæra stefnu þarlendra ríkisstjórna sem í sumum tilfellum eru ekki neitt sérstaklega félagshyggjusinnaðar. Það er bara mjög stór umræða, umræða sem ég er tilbúin til að taka seinna með hv. þingmanni vegna þess að ég held að við þurfum bæði að dýpka þetta aðeins og finna svolítið flöt á því hvar við ætlum að taka út áskoranir okkar í þessu efnahagslega samhengi sem ég vona að við getum gert í tengslum við það að hér verði aðildarviðræður að veruleika vegna þess að þá byrjar ballið. Þá þurfum við að ræða áskoranir og það mun ekki standa á mér að tala um þær vegna þess að ég mun gera kröfu til þess að við nálgumst þetta á yfirvegaðan hátt, með raunsæjum hætti og að við vitum að við þurfum að halda mjög vel á atvinnustefnu okkar. (Forseti hringir.) En við þurfum líka að halda vel á efnahagslegu öryggi okkar og ég treysti því að við hv. þingmaður tölum saman um virðiskeðjur í alþjóðlega samhenginu við fyrsta tækifæri.