157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og skoðanaskiptin. Já, ég er nú þeirrar skoðunar að við séum í raun og veru að verja ákveðin gildi með því að styðja Úkraínu. Það finnst mér vera nákvæmlega málið. Mér finnst að sá stuðningur eigi ekki bara að vera á þeim forsendum hvað okkur líður vel með sem friðelskandi þjóð því að ég held að flestar ef ekki allar þjóðir í Evrópu séu friðelskandi heldur þarf auðvitað stuðningurinn að taka mið af þeim aðstæðum og því sem Úkraínumenn eru að biðja um. Fyrir utan það þá er meiri hluti hér á Íslandi samkvæmt könnunum fyrir því að taka þátt í vopnakaupum, einmitt vegna þess að það er verið að verja einhver gildi sem skipta okkur Íslendinga mjög miklu máli.

Mig langaði að ræða annað við hv. þingmann og það er EES-samningurinn. Varaformaður Miðflokksins hefur mér fundist vera frekar glannalegur í yfirlýsingum um EES-samninginn, talað um mögulega uppsögn á honum og sett það þá í samhengi við innflytjendur. Við vitum auðvitað að EES-samningurinn tryggir frjálsa för fólks og þetta hefur verið einhver mesti styrkur íslensks samfélags, þessi gagnkvæma för fólks sem er auðvitað eitt af hryggjarstykkjunum í EES-samningnum. Gott og vel. Ég veit að ég og hv. þingmaður erum ekki sammála um Evrópusambandið eða hvort Ísland eigi að vera þar inni en mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér í því að EES-samningurinn hafi tryggt ákveðna farsæld hér á Íslandi, að frjálsa förin sem fylgir honum sé eitthvað sem byggi upp þessa farsæld fyrir okkur Íslendinga hér og líka þá Íslendinga sem fara út til að vinna eða í nám eða þess háttar og hvort þingmanninum hugnist þessi orðræða varaformanns Miðflokksins um að það komi til greina að hætta í EES-samstarfinu.