utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Það eru þrjú atriði sem ég vil vekja athygli á. Hv. þingmanni fannst skrýtið að við værum ekki með sérstaka greiningu á Evrópusambandinu. Ég vil vekja athygli á því að þetta er skýrsla um starfsemi utanríkisþjónustunnar árið 2025 og það er bæði mat ritstjóra þessarar frábæru skýrslu og mitt mat að það hefði verið skrýtið að hafa greiningu á því, sérstaklega þegar við erum, alla vega enn sem komið er, ekki í Evrópusambandinu. Ég held að það hefði nú heyrst hljóð úr horni ef við hefðum haft sérstaka greiningu á því. Þannig er það nú.
Í öðru lagi þá vil ég sérstaklega draga það fram varðandi framlög til Úkraínu — og mér finnst pínu erfitt að skynja ekki einlægni og hreinskiptni þegar kemur að stuðningi við Úkraínu — að við erum að setja annars vegar í varnartengd útgjöld, minnir mig, 55–60% af þeim framlögum sem fara þangað og það fer í gegnum mjög viðurkennda gegnsæja sjóði, danska módelið, tékkneska frumkvæðið svokallaða. Við erum að styðja PURL, sem eru sérstök kaup á vopnum frá Bandaríkjunum til þess að halda Bandaríkjunum líka nær okkur í þessu, þannig að það liggur alveg fyrir. Allt sem við höfum verið að setja í þróunarsamvinnu til Úkraínu fer m.a. í gegnum Alþjóðabankann og í gegnum ýmsar stofnanir og það liggja fyrir ítarlegar skýrslur um í hvað fjármagnið fer í öllum verkefnum til Úkraínu sem við veitum stuðning. Þannig að þetta liggur líka allt fyrir og ég vil ekki hafa það hangandi að það sé eitthvað óljóst.
Síðan er það Spánn og ég ætla að koma að því síðar af því að ég er búin með mitt fyrra andsvar. En ég vil bara undirstrika að ég vona svo innilega varðandi Úkraínu og Ísland að Miðflokkurinn fari að tala skýrar í því máli, að Miðflokkurinn standi með Úkraínu í þessu, ekki bara á þeim forsendum að okkur líði betur með því að senda vettlinga, eins og mér fannst hv. þingmaður vera að gefa til kynna, heldur að eiga í þessu samtali við Úkraínu (Forseti hringir.) og við okkar vinaþjóðir í NATO um hvað það er sem við getum raunverulega gert til þess að hjálpa. (Forseti hringir.) Við höfum gert það á tvíþættan hátt, annars vegar í gegnum varnartengdan stuðning og síðan í gegnum annan stuðning. Ég get nefnt til að mynda þátttöku í uppbyggingu orkumála. (Forseti hringir.) Við erum í samvinnu við Samorku og fleiri til að fara inn í þetta en við höfum líka veitt stuðning við kaup á hjálpartækjum því að (Forseti hringir.) því miður er það allt of mikið þannig að hermenn hafa misst útlimi í þessu hræðilega stríði sem Rússar bera fulla ábyrgð á.