utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Það er ástæða fyrir því að ég er að þráspyrja þingmenn Miðflokksins varðandi óbilandi stuðning við Úkraínu. Það á ekki að vera neitt feimnismál að reyna að kalla það fram. Allar ákvarðanir okkar Íslendinga varðandi Úkraínu eru byggðar á þingsályktun frá Alþingi. Óbilandi stuðningur. Hitt er síðan að það liggur fyrir hér í þingskjölum skjal frá Miðflokknum þar sem sjónum er m.a. beint að öryggis- og varnarmálum, ykkar stefnu í öryggis- og varnarmálum. Þar er ekki minnst á Rússland, hvað þá Úkraínu. Auðvitað fer maður að velta fyrir sér þessari loðmullu sem er í tengslum við ykkar afstöðu þegar kemur að Úkraínu. Þessi ríkisstjórn talar alveg skýrt og við erum að reyna að gera bæði það sem hjálpar Úkraínu á vígvellinum en ekki síður að fara í borgaralega uppbyggingu og við ætlum að fara í það. Það er allt uppi á borðum og allt hægt að nálgast á mjög skýran hátt.
Varðandi Spán þá er það einmitt þannig á þessum umrótatímum sem við þurfum að mínu mati á meiri diplómasíu að halda en minni. Er ég að segja að það eigi ekki að vera aðhald og fleira? Jú, það verður aðhald og við erum að skoða alls konar leiðir til að breyta um á sendiskrifstofum og gera ýmislegt. Og varðandi Spán akkúrat þá skiptir mig máli að sjá meira samtal á milli þessara ríkja og milli ríkjanna í Evrópu og helstu lykilríkja okkar því að það skiptir sérstaklega máli fyrir þetta land sem við erum fulltrúar fyrir. Það er löngu tímabært að opna sendiráð á Spáni. Fjöldinn er það mikill. Mér hefur verið bent á að meira en fjórðungur íslensku þjóðarinnar ferðast til Spánar á hverju ári og mikill fjöldi hefur þegar aðsetur þar og bara á Alicante-svæðinu, eru þar stóran hluta úr ári, tæplega 4.000 Íslendingar. Það væri saga til næsta bæjar ef við ætluðum hér heima að segja: Nei, þið verðið bara að redda ykkur með öðrum hætti.
Það hefur sýnt sig að álagið varðandi áritanir í tengslum við Schengen var orðið það mikið fyrir Íslands hönd að við þurftum að taka það yfir, önnur ríki gátu ekki lengur sinnt því af því að álagið var það mikið. (Forseti hringir.) Ég segi bara að á þessum tímum er það mikilvægara sem aldrei fyrr og er hin skynsamlegasta fjárfesting fyrir okkur Íslendinga (Forseti hringir.) að fjárfesta í öflugri utanríkisþjónustu sem hefur góð tengsl við atvinnulífið og samfélagið til að treysta hagsmuni okkar og tala fyrir þeim af því (Forseti hringir.) að öðruvísi gerist þetta ekki. Það talar enginn fyrir okkur nema við sjálf.