157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi Úkraínu þá kemur hæstv. utanríkisráðherra hér aftur upp eftir að ég hef lýst yfir pólitískum stuðningi og jafnvel fjárstuðningi við Úkraínu. Ég var ekki á þingi á síðasta kjörtímabili en formaður Miðflokksins, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, var það og ég veit ekki betur en hann hafi stutt þessa þingsályktunartillögu sem hæstv. utanríkisráðherra vísaði til og varðar fjárframlög til Úkraínu þannig að allt tal um það að Miðflokkurinn sé eitthvað tvístígandi í stuðningi við Úkraínu er algerlega fráleitt. Það er í rauninni ekki ásættanlegt þegar við erum að ræða á þingi fjárlög okkar og fjármál og stefnu til fleiri ára, þessi, hvað á ég að segja, eins og krakkarnir kalla það, gaslýsing einhvers konar. Það er ekki ásættanleg aðferð í umræðu hér á þingi.

Þegar kemur að sendiskrifstofum þá var það sem ég spurði um, og hæstv. ráðherra svaraði í rauninni ekki, hvort ekki væri tilefni til þess að endurskoða verkefni þessara sendiskrifstofa. Það er talað um að það sé fullt af fólki á Alicante. Fólkið var þarna fyrir tíu árum á Alicante án þess að þar væri sendiráð. Það væri fróðlegt að fá að vita nákvæmlega hvaða þjónustu sendiráð í Madrid er að veita fólki á Alicante. Spánn er ekki þriðja heims ríki, þar eru menn með sambönd og hringja heim til sín og þar er tækni og þar fram eftir götunum. Ég get séð fyrir mér að sendiskrifstofur Íslands — að fókusinn ætti kannski að vera á ákveðnum löndum þar sem eru kannski viðsjárverðar aðstæður. En ég bara velti upp þeirri spurningu hvort það sé ekki tími til kominn að endurskoða eitthvað, jafnvel þótt það væri ekki nema örlítið, hlutverk svona sendiráða og þar með þörfina fyrir fyrir … (Utanrh.: Það er verið að gera …) (Forseti hringir.) — Hæstv. utanríkisráðherra segir að það sé verið að gera það og það er kominn tími til og við hér í þinginu bíðum spennt eftir að heyra tillögur um breytta ráðstöfun eða breytta starfsemi þessara sendiráða.