157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp til að þakka fyrir yfirgripsmikla og jarðtengda ræðu þegar kemur að þessu gríðarlega mikilvæga hagsmunamáli sem utanríkismálin í heild sinni eru og þakka hv. þingmanni fyrir að draga það fram í rauninni hversu mikilvæg utanríkismálin eru. Þau eru líka orðin stór partur af innanlandsmálum, við þekkjum það, hvort sem það er fyrir fyrirtækin okkar, aðgang að mörkuðum, stöðugleika og samskipti á milli ríkja o.s.frv., það sem við höfum rætt um í gegnum tíðina. Ég vil þakka sérstaklega fyrir það og líka fyrir mjög einlæga og hreinskilna afstöðu þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við vitum það alveg að við vinnum frábærlega vel saman í þessu ríkisstjórnarsamstarfi en áherslur Flokks fólksins gagnvart Evrópusambandinu hafa verið aðrar en okkar en það er samt þessi heiðarleiki og einlægni og traust á því að fela þjóðinni þetta mikilvæga hlutverk, gefa henni tækifæri á að segja já við því að fá samning og að með því að segja já sé búið að tryggja þjóðinni aðra þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er þessi lýðræðisást í rauninni sem mér fannst hv. þingmaður draga fram fyrir hönd Flokks fólksins sem sker sig frá öðrum flokkum sem hafa verið á móti Evrópusambandinu. Mér finnst vera svo áberandi munur á ykkar nálgun í þessu heldur en þeirra flokka sem eru í stjórnarandstöðunni. Ég vil meina það að sögubækurnar muni fara vel með þessa nálgun og þessa afstöðu, algerlega óháð því hver verður síðan niðurstaðan í kosningunni í ágúst, sem ég vona að verði jákvæð til þess að við getum unnið saman og af einurð og festu að því að ná sem bestum samningi fyrir íslensku þjóðina.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: (Forseti hringir.) Er hann sammála mér um að þetta geti að hluta til verið ákveðið kynslóðamál, upp á það að við sýnum komandi kynslóðum hvernig hægt er að gera hlutina aðeins betur en við erum að gera í dag, ekki síst með tilliti til gjaldmiðilsins?

(Forseti (HildS): Forseti vekur athygli á því að það er eitthvað rugl á klukkunni (Utanrh.: Mér fannst þetta gott og ríflegt hjá forseta. ) — en ráðherra fékk sinn tíma og ríflega það.)