157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:40]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka svarið. Ég er með eina könnun í hausnum sem segir mér að það voru tveir flokkar sem voru með áberandi mest fylgi við það að styðja við ESB og líka þjóðaratkvæðagreiðsluna og það voru annars vegar Samfylkingin og hins vegar Viðreisn. Það sem olli mér vonbrigðum var að það var aðeins meiri stuðningur innan Samfylkingarinnar við ferlið heldur en innan Viðreisnar, bara örlítið, það heldur væntanlega hæstv. forsætisráðherra líka við efnið. Síðan fannst mér áhugavert að sjá að það er allt að 60% fylgi, minnir mig, meðal stuðningsfólks Flokks fólksins við að fara í þjóðaratkvæðagreiðsluna og það dregur fram að þið eruð einmitt í sinki við ykkar grasrót að fara í þetta og klára málið. Það er eitt af því sem ég vildi draga fram. En að öðru leyti vil ég bara enn og aftur ítreka þakkir mínar fyrir efnisríka ræðu.