utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Já, það er samkvæmt könnunum 60% fylgi meðal kjósenda Flokks fólksins við að farið verði í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu enda er þetta, eins og ég segi, í samræmi við það sem flokkurinn hefur og okkar formaður sagt í mörg ár, að það eigi að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta. Ég bara vona að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fái að fara fram án upphrópana og æsings og að það sé verið að þyrla upp ryki og búa til mál þar sem engin eru og að við getum farið í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að við séum að takast á málefnalegan hátt og treystum þjóðinni til að taka ákvörðun.