utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún fór ágætlega yfir það hversu háð Ísland er alþjóðasamstarfi, lítil herlaus útflutningssmáþjóð. ESB-sinnar hafa mikið talað um að með viðræðum við Evrópusambandið værum við að fjölga valkostum, að við værum að styrkja stöðu á alþjóðavettvangi með aðild að ESB. Aðrir hafa bent á að með þessu valdaframsali til Brussel, sem óumdeilanlega felst í ESB-aðild, værum við að þrengja stöðuna enda er Evrópusambandið tollabandalag sem hefur t.d. sumpart átt í mjög stirðum samskiptum við Bandaríkin og verið skotspónn þeirra. Þá höfum við auðvitað allt það besta úr Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og það sem er eftirstandandi, þar með talið erfiðu bitarnir, verða auðvitað dýru verði greiddir.
Ég er með tvær spurningar til hv. þingmanns. Annars vegar hvað hún átti við í inngangi sínum þegar hún talaði um mikilvægi þess að Ísland ætti fulltrúa þar sem ákvarðanir væru teknar, ef ég tók rétt eftir. Er hv. þingmaður með þessu að boða breytta afstöðu Flokks fólksins til ESB-aðildar eða var hún e.t.v. að vísa til einhvers annars? Og hins vegar: Hvernig ætlar hv. þingmaður að kjósa? Ætlar hún að kjósa með aðildarviðræðum við Evrópusambandið?