157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir vill fá að vita mína afstöðu og hvernig ég mun greiða atkvæði. Ég áskil mér rétt til þess að taka þá ákvörðun þegar á sumarið líður, eins og væntanlega aðrir landsmenn. Ég hef alveg mínar efasemdir um að það sé gott að fara í viðræður. Ég get líka séð kosti við það. Þannig að ég áskil mér bara rétt til að fá að greiða atkvæði eftir því sem mér þykir best þegar líður á. Ég held að það sé alltaf gott að eiga fulltrúa á sem flestum stöðum og í sem flestum umræðum og annað. Hvort ég sé tilbúin til að segja að það sé þess virði að fara í Evrópusambandið til að eiga fulltrúa þar er aftur á móti algerlega annað mál og ég er ekkert endilega viss um að það sé þess virði. En það er, eins og ég segi, eitthvað sem að — við eigum bara eftir að sjá hvað gerist á næstu vikum og mánuðum. Þetta eru spennandi tímar.