utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Ásthildi Lóu Þórsdóttur að utanríkismálin eru gríðarlega mikilvæg almennt og hvað þá í þessu máli þegar við ræðum um Evrópusambandið sem verið er að fara að greiða atkvæði um í haust. Ég vona svo sannarlega að það verði ekki í lok sumars þegar fólk er að koma úr sumarfríum. Ég tel eðlilegast að það sé gert þegar þingið hefur komið saman og ró er að færast yfir samfélagið og þjóðin kannski tilbúin að taka umræðu þegar við förum inn í haustið. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því með tímasetninguna að vera með þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst? Væri ekki eðlilegt, eins og hefur verið bent á, að huga að þessu t.d. í október? Þá er þingið búið að starfa í rúman mánuð og samfélagið komið í gang og búið að ræsa vélarnar. Við þekkjum hvernig íslenskt samfélag virkar yfir sumarið, það (Forseti hringir.) dettur svolítið niður eða fer í mikinn hægagang.