157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:07]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ágæta og yfirgripsmikla ræðu. Ég get tekið undir mjög margt af því sem kom fram í ræðunni en þó ekki allt. Við erum búin að vera í þessari umræðu, eðli málsins samkvæmt, að tala um Úkraínu og stuðning okkar Íslendinga við Úkraínu. Það hefur gjarnan verið litið á það, svona af flestum í þessum sal, að stuðningur okkar ætti að vera gríðarlega mikill og þá á þeim forsendum að Úkraínubúar séu í raun og veru orðnir framverðir evrópskra gilda sem Rússar eru að reyna að valta yfir. Ég átta mig á því að sumt í þessu er viðkvæmt. Sumir þingmenn hafa talað um að það sé ekki í þeirra anda að það sé verið að styðja verkefni eða vopnakaup og annað í þeim dúr þótt það sé þannig að stjórnvöld í Úkraínu og Úkraínubúar vilja kannski frekar fá vopn til að verjast, því að það er jú verið að reyna að drepa þau, frekar en eitthvað annað. Það komu hingað margir þjóðarleiðtogar til Íslands um árið og þar var m.a. ritað undir tjónaskrá þar sem menn voru að reyna að átta sig á tjóninu sem Rússar voru að valda í Úkraínu. Um svipað leyti drógum við Íslendingar til baka eitt stuðningsúrræði sem við höfum hleypt í gegn hjá okkur, þ.e. að fella niður tolla á úkraínskar kjúklingabringur. Það kom fram í þingsal að um þetta var ágreiningur í síðustu ríkisstjórn. Fyrrverandi utanríkisráðherra talaði um að það hefði ekki náðst saman um að halda þessu áfram. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Var það Framsóknarflokkurinn sem kom í veg fyrir að við gætum áfram styrkt Úkraínu með þessum sértæka hætti? Finnst honum bæði þetta og þetta sem ég nefndi með vopnin (Forseti hringir.) vera endilega til marks um það að stuðningur Íslendinga sé óbilandi og skilyrðislaus? (Forseti hringir.) Guggnum við alltaf þegar þetta fer að snúast um einhverja fjárhagslega hagsmuni hjá okkur sjálfum?