utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir og get svo sem fúslega gengist við því að það var smá stríðni í þessari fyrirspurn en vil þó samt segja að þetta er samt ákveðið prinsipp. Ef við erum að tala um að við séum óbilandi í stuðningi okkar við tiltekið ríki en bökkum einhvern veginn út úr því þegar þetta er farið að snúast um einhverja fjárhagslega hagsmuni hér innan lands þá finnst mér ekkert rosalega mikill mannsbragur á því, svo ég sé alveg heiðarlegur. Þó að þetta sé auðvitað svolítið í fortíðinni, þetta tiltekna mál, þá hverfist það að ákveðnu leyti um þau prinsipp sem a.m.k. minn flokkur vill halda mjög á lofti. Það er ástæða fyrir því að við erum að styðja við bakið á Úkraínu; það er vegna þess að við erum að verja ákveðin gildi sem ég held að við flest, ef ekki öll, hér í þessum sal séum bara ágætlega sammála um. En nóg af því.
Mig langaði líka að inna hv. þingmann eftir því — af því að það var auðvitað komið aðeins inn á Evrópusambandið, sjálfstæði og fullveldi og þar fram eftir götunum. Eitt af því sem hv. þingmaður nefndi er að við mættum ekki loka okkur af og ég las það í ræðunni að það væru þá mögulega einhvers konar varnaðarorð gegn því að ganga inn í Evrópusambandið, þannig værum við að loka okkur einhvern veginn af. Síðan þetta tal um fullveldi og sjálfstæði; mér finnst þetta alltaf svo áhugaverður punktur af því að mig vantar alltaf svo rökstuðninginn fyrir því. Ef þetta er spurning um fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar, hvernig geta menn komið fram við þessar vinaþjóðir okkar, Dani, Finna, Svía, Hollendinga, Íra, Belga, Þjóðverja og Frakka, eins og þetta séu ekki sjálfstæðar og fullvalda þjóðir? Hvernig er hægt að rökstyðja það, og nú bið ég hv. þingmann um að reyna að gera það hér fyrir okkur, að þessar þjóðir séu minna sjálfstæðar og minna fullvalda heldur en við Íslendingar þegar þær hafa tekið þá ákvörðun sem sjálfstæðar og fullvalda þjóðir (Forseti hringir.) að gangast undir tiltekna hagsmuni sem nýtast íbúum landsins, atvinnulífi og öðru með meiri hætti heldur en minni? (Forseti hringir.) Hvernig getur það verið einhvers konar tap á fullveldi og sjálfstæði og hvernig getum við verið einhvern veginn meira fullvalda og meira sjálfstæð en til að mynda Danir, Svíar og Finnar?