utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Ég skynjaði nú ákveðna glettni í fyrra andsvari hv. þingmanns og skildi sneiðina. Auðvitað er það þannig, virðulegur forseti, að þetta snýst allt um hagsmuni. Það rifjast oft upp fyrir mér, sérstaklega í umræðum í þessum sal, þegar ég var fyrir ansi mörgum árum að læra stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Þar var prófessor sem kenndi mér alþjóðastjórnmál sem heitir Albert Jónsson. Það fyrsta sem hann sagði við okkur þegar við hófum önnina var að það væri ekkert til sem heitir vinaþjóðir. Þetta eru allt saman hagsmunir. Þetta snýst allt um hagsmunagæslu og að sjálfsögðu eru ríkin að verja sína hagsmuni. Það getur falist í því að menn velji það að fara í bandalög, að gera samninga, viðskiptasamninga, tollasamninga eða fríverslunarsamninga, eða hvers lags samkomulag á milli þjóða. En þeir snúast alltaf um það að þú sért að vernda þína hagsmuni og gera þína stöðu betri í alþjóðasamfélaginu. Ég held bara að ég og hv. þingmaður, þótt við séum nú held ég sammála um ansi margt þó að það komi kannski ekki beint fram í þessum sal, en utan hans erum við sammála um ansi margt, deilum ekki sömu skoðun og sömu sýn á það hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið innan eða utan Evrópusambandsins og hvort Ísland sé á einhvern hátt að missa sjálfstæðið eða hluta af sjálfstæði sínu. Ég lít þannig á það. Ég veit að hv. þingmaður gerir það ekki og þar við situr. Ég held að þó að ég og hv. þingmaður myndum sitja hér fram eftir nóttu þá myndi hvorugur okkar breyta um skoðun ef ég þekki okkur rétt.