157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:25]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem fór að nokkru leyti inn á Evrópusambandið. Mig langaði að spyrja hv. þingmann, þar sem hann er formaður utanríkismálanefndar, hvort hann geti hjálpað mér að skilja orð hæstv. forsætisráðherra frá því í morgun þegar hún segir, með leyfi forseta: Ég mun segja já í ágúst en ég vil líka fá góðan samning. Ég mun aldrei leggja til samning inn í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu sem ég hef ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma.

Nú hljómar þetta ágætlega en það sem mig langar til að skilja, af því að nú er ítrekað sagt að við séum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu til að kíkja í pakkann, hvort það verði á endanum spurning um hver sé skoðun hæstv. forsætisráðherra, hvað hún telji þjóna hagsmunum Íslendinga sem ráði för um hvort samningur verði lagður fyrir þjóðina? Ég get ekki skilið þetta öðruvísi. Geta aðrir ráðherrar komið í veg fyrir að þessi samningur verði lagður fyrir þjóðina eða, ef það verður sagt já í ágúst, að það strandi á því að Evrópusambandið segi stopp eða við náum ekki lengra með nokkra kafla? En þetta voru miklar upplýsingar fyrir mig í morgun að heyra það að hæstv. forsætisráðherra ætlaði upp á sitt einsdæmi að ákveða hvort samningur yrði lagður fyrir þjóðina. Getur hv. þingmaður eitthvað farið betur yfir þetta með mér?