utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Hér á sér stað mikil upphefð. Fyrst er ég gerður að formanni efnahags- og viðskiptanefndar og síðan er mér gert að svara í raun fyrir hönd forsætisráðherra. Nú er það þannig að það er hægt að bera upp spurningar til forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum hér í þinginu og láta hana skýra út orð sín. Mér kemur þessi yfirlýsing ekkert sérstaklega á óvart, ég er hér beðinn um að túlka hana ef ég skil hv. þingmann rétt. Forsætisráðherra kemur fram fyrir hönd þjóðarinnar og í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er auðvitað sótt um umboð til þjóðarinnar til að fara í ákveðinn leiðangur, í ákveðna vegferð, og sækja um að ganga í Evrópusambandið eða koma með samning sem tryggi aðild á hagstæðum kjörum fyrir Ísland. Ég skil þetta þannig og ég held að ég myndi ekki vera ósammála því að ef út úr þessu kæmi eitthvað slíkt að það væri með öllu óásættanlegt að mati stjórnvalda að leggja slíkt fyrir dóm þjóðarinnar þá skil ég forsætisráðherra þannig að slíkur samningur yrði ekki lagður í dóm þjóðarinnar. En ég held að það sé bara réttast að þingmaðurinn spyrji hæstv. forsætisráðherra að þessu. Ef ég ætti að reyna að búa til dæmi, þó ég ætli ekki að smætta þetta niður í einhver önnur viðskipti, en segjum að einhver myndi óska eftir því við mig að ég myndi sjá um að kaupa fasteign eða lóð fyrir hans hönd og ég myndi fara á staðinn og komast síðan að því, eftir að hafa fengið umboð til þess, að það væri einfaldlega ekki hægt að ná kjörum sem væru ásættanleg fyrir minn umbjóðanda, sem í þessu tilfelli er þjóðin, þá myndi maður ekki halda áfram og koma heim með eitthvert tilboð sem væri augljóslega með þeim hætti að það væri ekki réttlátt fyrir neinn að sættast á það. Þannig að ég skil forsætisráðherra bara einfaldlega með þessum hætti.