157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:36]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson byrjaði á að nefna einhverjar tölur, 8.000 milljarða. (GÞÞ: 8.000 milljónir. )8 milljarða, gott og vel. Í fyrsta lagi, ef við horfum á heildarsamhengi og vaxtakostnað íslenskra heimila, ég meina, ef við erum að tala um að einhver sé með 100 millj. kr. lán þá er vaxtamunurinn sem ég nefndi hér, þá eru það 5 milljónir á ári þannig að 200 heimili gera milljarð þannig að við erum ekki lengi að ná upp í tölur sem skipta máli þannig að við getum náð þessum tölum til baka. Mér finnst því stundum þegar við erum að tala um 500 milljónir í einhverja kosningu að það séu líka aðrar tölur sem skipta máli.

Ég skal líka vera hreinskilinn með það að ef við fáum umboð til að fara aftur í aðildarviðræður við Evrópusambandið og ef okkur bjóðast styrkir til að vinna að þeirri umsókn þá held ég að það sé þjóðarhagur að þiggja þá styrki. Mér fyndist skrýtið ef við ætlum að sækja um aðild að Evrópusambandinu og okkur býðst einhver peningur til að bæta okkar hagtölusöfnun aftur, þá fyndist mér skrýtið að segja: Nei, við ætlum bara að gera það sjálf. Við ætlum alls ekki að þiggja neitt fé frá Evrópusambandinu til að gera það. Mér finnst það skrýtin afstaða og ég myndi ekki hafa neitt á móti því að þiggja aftur fjármagn frá Evrópusambandinu til þess að vinna að okkar umsókn.

Það er spurt um varanlegar og tímabundnar undanþágur. Ég ætla að bíða aðeins með að útlista það nánar fyrr en við kannski vinnum þau mál almennilega í hv. utanríkismálanefnd. Ég get þó nefnt að þegar kemur að hlutum, og það hefur auðvitað verið nefnt, eins og stjórn fiskveiða og það að kvóti hér á Íslandsmiðum sé úthlutaður á Íslandi, þá finnst mér tímabundin þriggja ára undanþága ekki duga til að huga að okkar hagsmunum. En þegar kemur að hlutum sem er viðbúið, t.d. er Evrópusambandið viðskiptabandalag þannig að eitthvað af þeim fríverslunarsamningum sem við erum með munu falla niður. Í einhverjum tilfellum breytast aðfangakeðjur með einhverjum hætti og þá fyndist mér eðlilegt að við værum þegar kemur (Forseti hringir.) að þessum viðskipta- og tollamálum með einhverjar tímabundnar undanþágur sem myndi gera það að verkum að okkar hagsmuna yrði gætt þar.