157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svörin valda mér nokkrum vonbrigðum. Þegar ég var að tala um þessar 8.000 millj. kr. þá voru það IPA-styrkirnir sem fóru til Íslands, að vísu stýrt af framkvæmdastjórninni. Mér finnst hv. þingmaður vera nokkuð glannalegur þegar hann talar um hvað við græðum gríðarlega mikið á því í vaxtakostnaði og öðru slíku. Væntanlega fáum við eitthvert atvinnuleysi á móti, það segir sig sjálft, og eitthvað kostar það og það er bara þannig að ríkustu löndin í Evrópu eru fyrir utan Evrópusambandið. Þetta er því aðeins flóknari mynd. Svo held ég að tímabundnar undanþágur varðandi fríverslunina geti illa gengið upp í sameiginlegu tollakerfi en látum það liggja á milli hluta.

Hv. þingmaður er, eins og aðrir, farinn að tala um undanþágur. En af hverju þurfum við að fá undanþágur ef þetta er svona gott? Hv. þingmaður hefur almennt verið fylgjandi því að fara þarna inn, ekki verið að tala mikið um undanþágur fyrr en á síðustu vikum. Núna stýrum við t.d. sjávarútveginum, sem er mikil umræða um, 100%. Ef við förum inn, eins og hv. þingmaður þekkir, og engar undanþágur þá stýra þeir þessu 100%, þá er þetta bara alveg í sameiginlegu stefnunni og fer eftir sömu reglum. Hvað vill hv. þingmaður, t.d. í sjávarútveginum eða landbúnaðinum, fá mikið til baka? Eru það 10%, 20% sem við fáum áfram að ráða sjálf því að hv. þingmaður hefur viðurkennt að Evrópurétturinn muni gilda þannig að til frambúðar munum við þurfa að hlíta því. En núna stýrum við öllum þessum málum algerlega og það eru mjög margir málaflokkar, ekki bara sjávarútvegur og landbúnaður, sem fara til Evrópusambandsins. Þegar hann er að tala um undanþágur, hvað vill hann fá mikið? Tökum bara sjávarútvegsmálin af því að við stýrum þeim 100% núna, (Forseti hringir.) ef við förum inn í Evrópusambandið þá stýra þeir þessu 100% nema við fáum einhverjar sérlausnir og undanþágur. (Forseti hringir.) Hvað þarf mikið, 10%, 20%, 30%, hvað hefur hv. þingmaður í huga?