157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:42]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi þessar tölur hér um kostnað og vexti þá vildi ég bara nefna og mér finnst það skipta miklu máli vegna þess að hagsmunir okkar Íslendinga, neytenda og íbúðakaupenda af því að fá lægri vexti og fyrirtækja eru auðvitað mjög miklir þannig að ef þú ert að líta á einhvern milljarð í kosningu og eitthvað annað í samningaviðræður og síðan pening sem Evrópusambandið er til í að gefa þér sem eitthvað slæmt, þá erum við, að því gefnu að við fáum betri vexti, mjög fljót að fá það til baka. Það er ekki þannig að öll þessi lönd í Evrópusambandinu séu með atvinnuleysi uppi í rjáfri. Við erum með lönd eins og Danmörku og Lúxemborg sem eru bara með mjög svipuð hagkerfi og við, rík hagkerfi með tiltölulega lágt atvinnuleysi en miklu lægri vaxtakostnað. Þetta er því algerlega falskt val svo það sé sagt.

Mér finnst einhvern veginn það að reyna að taka löggjöf í prósentum ekki vera rétt nálgun á þetta. Prinsippið sem við höfum verið að tala um þegar kemur að sjávarútvegi, við fengum á fund okkar í utanríkismálanefnd mjög góða gesti frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi sem töldu upp hvað þeir teldu vera meginhagsmuni Íslands þegar kæmi að samningaviðræðum við Evrópusambandið og nefndu auðvitað það að aðildarsamningar eru hluti af frumrétti Evrópusambandsins þannig að það sem ratar inn í aðildarsamning er bara frumréttur þannig að því verður ekki snúið við með einhverri reglugerð. Þau nefndu þar hluti eins og takmörkun á fjárfestingum og að úthlutun á kvóta á Íslandsmiðum myndi vera ákveðin á Íslandi og fara í gegnum íslenska veiðiráðgjöf. Það voru líka nefndir einhverjir hlutir varðandi hvalveiðar og fleira. Inni í þeirri umsögn er því fullt af dæmum um hagsmuni sem við getum haldið til haga í hugsanlegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Mér finnst það skipta meira máli að sem flest af því nái fram heldur en að tala um eitthvert hlutfall lagasetningar sem við myndum ná fram.