157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[20:00]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið og mér finnst þetta auðvitað bara jákvæð og uppbyggileg umræða. Ég kannski nefni hérna að já — ég hafði orð á því að mér finnst þingmaðurinn stundum svolítið vanstilltur þegar hann talar um Evrópusambandið og það er bara eins og það er. Við erum ástríðufólk í pólitík og ekkert nema gott eitt um það að segja. En ég er alla vega ánægður með að við deilum þó að einhverju leyti sýn á að það getur verið svolítið vandasamt fyrir lítið hagkerfi með gríðarstórt lífeyriskerfi að það sé meira og minna bundið hér innan ríkisins á meðan við erum með lítinn gjaldmiðil. Úr þeirri áhættu þurfum við að draga og það er þó gott að við séum sammála um að best væri að gera það í skrefum.

En mig langaði líka að spyrja hv. þingmann, af því að hann nefndi þetta með tryggingafélög og annað: Íslenska ríkið á banka og í tíð síðustu ríkisstjórnar keypti þessi banki tryggingafélag, það var sem sagt eitt tryggingafélag ríkisvætt fyrir ekki löngu síðan. Þetta segir okkur auðvitað allt um það hvað það getur verið sérkennilegt að mínu mati að vera með ríkið svona virkt á samkeppnismarkaði. Auðvitað er það þannig að þegar bankar, tryggingafélög eða stórar fyrirtækjakeðjur eru að velja sér staði til að keppa á skoða þau auðvitað markaðinn. Allar þessar keðjur, bankar og tryggingafélög starfa á 400.000–500.000 manna mörkuðum í borgarsamfélögum erlendis, það gera líka risastórar verslunarkeðjur og annað, og það hafa verið gerðar margar lærðar skýrslur um það að íslenska krónan sé ákveðin viðskiptahindrun í þessu, þ.e. að hún búi til ákveðna viðskiptahindrun sem geri það að verkum að hér þróast fákeppnismarkaður, (Forseti hringir.) sem er ekkert endilega ákjósanlegt fyrir íslenska neytendur og í sjálfu sér ekkert ákjósanlegt fyrir íslenskt samfélag. (Forseti hringir.)

Mig langar bara að spyrja hv. þingmann: Afneitar hann því algerlega að krónan sé samkeppnishindrun að þessu leyti, eins og skýrslur hafa sagt mjög skýrt til um?