utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður sé aðallega vanstilltur þegar hann hlustar á málefnalega umræðu um Evrópusambandið og ég hafna þessum ósmekklegu ásökunum hans. En látum það liggja á milli hluta. Förum aðeins yfir í banka og tryggingafélög. Í fyrsta lagi hefur það áhrif, t.d. á vaxtastig, ef það eru háir skattar á fyrirtækjunum. Það eru t.d. neytendur sem borga bankaskatt. Það er ekki heimilt og ekki um það að ræða ef þú býrð í Þýskalandi að þú takir lán frá Grikklandi. Það er mjög lítið yfir landamæri. Það er rétt að þetta eru ákveðin markaðssvæði. Ég er t.d. með erlenda líf- og sjúkdómatryggingu. Um tíma var þetta mjög stórt og þeir voru stærstir á markaðnum hér þangað til Fjármálaeftirlitið herti á reglum. Ég veit ekki til þess að neinn hafi borið skaða af þessu en þetta var nú bara í gegnum Evrópska efnahagssvæðið. Gjaldeyrisáhætta — ég borga mín iðgjöld í pundum og ég vona að ég fái aldrei út úr tryggingunni en ef það kæmi til þá væri það í pundum, þannig að það er engin gengisáhætta þar. Við munum að Skandia kom inn á markaðinn og þeir fóru ekkert út út af krónunni. Þeir fengu bara mjög gott tilboð frá íslenskum tryggingafélögum sem vildu kaupa það.
Það eru bæði kostir og gallar við að vera lítið samfélag. En ef við skoðum reynslu okkar þá er það ekki út af þessu sem erlendu tryggingafélögin fóru, það er ekki þannig. En þau komu hingað og um tíma voru þau mjög stór. Þau eru það enn þá, sérstaklega í sparnaði. Við sjáum bara auglýsingarnar frá Allianz að það eru fleiri. Tryggingamiðlanir eru sérstaklega að selja sparnaðinn. En það var hert á reglunum — og ég held að það hafi verið óskynsamlegt og ég veit ekki hvernig það kom til, ég held að það hafi ekki komið til út af lagabreytingu — af Fjármálaeftirlitinu. (Forseti hringir.) Þú getur fengið líf- og sjúkdómatryggingu í erlendum félögum en einhverra hluta vegna, og miðlararnir segja mér að það hafi verið út af Fjármálaeftirlitinu, (Forseti hringir.) var hert á þeim þannig að þau eru ekki jafn áberandi og þau voru áður. (Forseti hringir.) Samkeppnin er til staðar og hún er út af EES og það mun ekki breytast neitt þó að við göngum inn í Evrópusambandið.