157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[20:18]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og kannski get ég sleppt ræðu ef ég næ að koma ESB-punktunum mínum áleiðis í þessu andsvari. Ég ætla ekkert að vera ósammála því að við eigum auðvitað alltaf að standa vaktina og við eigum alltaf að velta fyrir okkur hvar hagsmunir Íslands liggja. Þegar ég er að ræða hér norrænt varnarsamstarf þá er ég einmitt að benda á það að ég held að varnir okkar liggi á norðurslóðum. Þar eru okkar áhættur. Ef þú horfir á hnöttinn þá eru þær ekkert endilega í Evrópusambandinu. Jú, jú, það er alveg rétt að Finnar og Svíar eru í Evrópusambandinu. Noregur er það ekki og mig langaði kannski að koma aðeins inn á umræðuna í Noregi hvað það varðar. Risastóra landið Grænland er ekki í Evrópusambandinu. Það er reyndar fyrsta landið sem gekk út úr Evrópusambandinu langt á undan Bretlandi. Jú, jú, Grænlendingar heyra enn þá undir konungsveldið Danmörku sem er í Evrópusambandinu. En ef við fikrum okkur svo áfram á norðurslóðum þá erum við með Kanada og Alaska og svo er hinn helmingurinn auðvitað Rússland, þannig að þetta er ekki eitthvert Evrópusambands-Brusselmiðað umhverfi. Ef við horfum svo á GIUK-hliðið þá erum við að tala um að við erum með Grænland og Ísland og svo erum við með Bretland sem er farið út úr Evrópusambandinu. Ég er mjög hlynnt alþjóðlegu samstarfi. Litla Ísland, sem er alls ekki varnarlaust þó að við séum ekki með her — við eigum auðvitað að horfa á þessi samstarfsríki okkar sem við getum deilt hugmyndum og hugsjónum með og hafa einhverja hagsmuni af því að gæta varna hér á Íslandi. Þar eru Bandaríkin auðvitað efst á blaði. Við vitum það alveg að við erum ákveðin varnarlína fyrir austurströnd Bandaríkjanna. Það er ástæðan fyrir því að herinn kom hingað og það er ástæðan fyrir umræðunni um Grænland núna. En það er líka Bretland. Þetta eru ríki sem eru algerlega utan Evrópusambandsins. Ég skil ekki þá umræðu að segja: Heyrðu, nú er mikið að breytast í heiminum og ég veit að það eru alls konar hlutir að gerast í Bandaríkjunum og úti um allan heim og að það eigi að ýta okkur inn á það að fara til Brussel og ræða við Brussel út frá vörnum Íslands. Í mínum huga er það bara töluvert fjarlægt. Það er nákvæmlega ástæðan fyrir því sem maður heyrir í Noregi þegar ég tala við kollega mína þar sem margir hverjir eru mjög hlynntir því að ganga í Evrópusambandið en þeir segja engu að síður að tíminn sé ekki núna vegna þess hvernig ástandið sé í heimsmálunum. Þeir segja einmitt: Heyrðu, við ætlum ekki að kljúfa þjóðina í umræðu um Evrópusambandið núna því við ætlum að vera raunverulegir bandamenn innan NATO. Við ætlum að vinna með Norðurlöndunum. (Forseti hringir.) Við ættum að huga að þessu samstarfi. Við ætlum ekki að kljúfa umræðuna um einhverja inngöngu í Evrópusambandið.